Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

20.11.2008 | Handbolti

Landsbankamótiđ um helgina hjá 5. flokki stúlkna

Nú um helgina verður Landsbankamótið í handbolta hjá 5. flokki stúlkna haldið á Selfossi.  Handknattleiksdeild Umf. Selfoss heldur mótið sem er hluti af Íslandsmeistaramótinu í 5. flokki stúlkna. Á Selfoss munu streyma stelpur á aldrinum 10-11 ára. Alls eru 25 lið skráð til leiks og búast má við um 250 keppendum og öðru eins af foreldrum og liðstjórum. Leikið verður í  íþróttahúsi Vallaskóla og íþróttahúsi FSu Iðu.

Byrjað verður á föstudeginum kl. 16:00 og ekki linnt látum fyrr en að loknum 50 leikjum, seinni part sunnudags. Um 50 starfsmenn koma að mótinu sem krefst mikillar skipulagningar. En þökk sé öflugu foreldrastarfi hjá deildinni og fjölmörgum sjálfboðaliðum sem tilbúnir eru að leggja hönd á plóg.

Þetta er í fimmta skiptið sem þetta mót er haldið. Það er leikmenn Handboltaakademíu FSu sem sjá um dómgæslu.

Selfoss sendir tvö lið til leiks. Eitt A-lið skipað stelpum fæddar 1996 og eitt B-lið skipað stelpum fæddar 1997

Landsbankinn á Selfossi er aðalstyrktaraðili yngri flokka starfs handknattleiksdeildar og móti ber nú nafn bankans fjórða árið í röð.

5kv5


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta