Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

20.11.2008 | Handboltaakademía

Tap gegn Fram í lélegum leik

91-liðið tapaði á heimavelli gegn Frömurum frá Reykjavík 33-31 eftir að jafnt hafi staðið í fyrri hálfleik, 1616. Leikurinn var spennandi og jafn nánast allan leikinn, Selfysssingar náðu mest tveggja marka forustu í fyrri hálfleik, en Framarar komust yfir þrjú mörk í þeim síðari. Heimamenn náðu að komast yfir 31-30 en þrjú síðustu mörk leiksins voru Framara.

Selfossliðið var vel stutt í leiknum og var hann vel dæmdur af þeim Ramunas Mikalonis og Guðmundi Inga Guðmundssyni.

Selfoss lék illa í leiknum, menn voru of staðir, fóru illa með fjölmörg dauðafæri og mikið var um áður óséð varnarmistök. Mann vantreystu hverjum öðrum í vörn og fóru að brjóta sig út úr þeim vinnureglum sem eru til staðar. Uppskeran var eftir því. Margir í liðinu skila mun minna framlagi en geta gefur tilefni til og er það áhyggjuefni. Ljóst er að þeir hinir sömu verða að taka sig allverulega saman í andlitinu.

Þetta er enginn heimsendir en alveg er ljóst að menn verða að mæta betur undirbúnir til leiks en þeir gerðu í gær.

Tölfræði:
Örn Þrastarson 9 mörk úr 13 skotum, 3 stðsendingar og 7 brotin fríköst
Andri Már Sveinsson 5 mörk úr 8 tilraunum
Árni Steinn Steinþórsson 5 mörk úr 9 skotum
Matthías Örn Halldórsson 5 mörk úr 10 skotum, 6 stoðsendingar og 8 brotin fríköst
Aðalsteinn Halldórsson 3 mörk úr 8 skotum og 4 brotin fríköst
Þór Davíðsson 3 mörk úr 4 skotum og 10 brotin fríköst
Orri Davíðsson 1 mark og ein tilraun
Trausti Eiríksson 0 mörk og 3 tilraunir
Anton Freyr Traustason 0 mörk og ein tilraun
Sigurþór Þórsson 0 mörk og ein tilraun og 7 brotin fríköst
Andri Hrafn Hallsson 0 mörk úr 2 tilraunum og 2 fiskuð vítaköst


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta