Nú um helgina fór fram fjölmennt handboltamót á Selfossi, þegar Landsbankamótið í 5. flokki kvenna, yngra ár, fór fram. Um 250 keppendur mættu til leiks, 25 lið lið tóku þátt og leiknir voru 50 leikir á þremur dögum. Mótið tókst mjög vel, allar tímasetningar stóðust. 20 piltar úr handboltaakademíu Fsu dæmdu leikina. 25 tímaverðir úr 5. og 4. flokki kvenna sáu um skráningar. Foreldrar strákanna í 4. flokki sáu um sjoppu og lögðu fram mikla vinnu, en allur ágóði af sjoppusölu fer í ferðasjóð. Ætla má að yfir 500 manns hafi heimsótt Selfoss um þessa helgi í tengslum við mótið. Þetta er í fimmta skiptið sem þetta mót er haldið og er það búið að festa sig í sessi í íþróttalífinu.
Selfoss stelpunum gekk mjög vel á mótinu. Selfoss 1 lék í 2. deild og vann alla sína leiki með yfirburðum en liðið á klárlega heima á meðal þeirra allra bestu í þessum aldursflokki. Stelpurnar í 6. flokki léku sem Selfoss 2 og urðu þær í öðru sæti í 3. deild, unnu þrjá leiki, en töpuðu einum. Öll úrslit mótsins má sjá hér fyrir neðan.
Helgin 21.-23. nóvember - Umsjón Selfoss - Úrslit
Hér eru nokkar myndir af mótinu um helgina.
