4. flokkur kvenna mætti Fram í 32-liða úrslitum bikarkeppni HSÍ í gær. Leikurinn var jafn allan leikinn. Fram stelpurnar byrjuðu betur og komust í 2-5, en Selfoss saxaði hægt og rólega á forskotið og í hálfleik var staðan 7-8 fyrir Fram. Selfoss stelpurnar komu síðan sterkar inn í seinni hálfleikinn og náðu fljótt yfirhöndinni í leiknum og leiddu með 4 mörkum á tímabili. Leikurinn endaði 19-16 og komust stelpurnar því áfram. Það voru landsliðsmennirnir 3 hjá Selfossi sem stóðu sig best, þær Kristrún, Hrafnhildur Hanna og Birta Rós. Einnig spilaði Esther Hallsdóttir sinn besta varnarleik á tímabilinu og Díana Sigmarsdóttir kom sterk inn í seinni hálfleik.
Tölfræði
Kristrún, 7 mörk úr 10 skotum og 11 brotin fríköst.
Hrafnhildur Hanna, 7 mörk úr 12 skotum, 4 brotin fríköst og 4 unnir boltar.
Díana, 3 mörk úr 7 skotum.
Alexandra, 1 mark úr 3 skotum.
Esther, 1 mark úr 1 skoti og 12 brotin fríköst (en það er nýtt met hjá liðinu).
Birta Rós varði 10 skot og fékk á sig 15 mörk.
