Fyrri leikurinn við Val í bikarnum var allan tímann spennandi. Leikurinn vannst þó að lokum með minnsta mun 29 - 28 en staðan í hálfleik hafði verið 16 - 16. Í lið Selfoss vantaði Birkir, Sjóla og Einar Héðins vegna meiðsla og munar um minna.
Markskorarar Selfoss voru:
Guðmundur 9
Bjarki 8
Eyþór 5
Ragnar 5
Halldór 1 og 8 stoðs.
Helgi Héðins 1
Ástgeir varði 3 skot og náði sér ekki á strik í fjarveru Birkis.
Helgi Hlyns leikmaður 3 flokks stóð sig mjög vel og varði 14 skot, þar af 2 víti.
Seinni leikurinn var á móti Fram núna á þriðjudaginn síðasta. Að þessu sinni voru allir með nema Birkir sem var enn meiddur. Leikur liðsins var mjög sveiflukenndur og skiptust liðin á því að ná 3-5 marka forystu fram í miðjan seinni hálfleik þegar Selfoss náði yfirhöndinni og kláraði leikinn með 8 - 1 kafla. Úrslit leiksins urðu 34 - 30 fyrir okkar stráka en staðan í hálfleik hafði verið 15 - 17 fyrir Fram.
Markaskorarar Selfoss:
Bjarki 7
Eyþór 6 og 6 stoðs.
Ragnar 5
Sjóli 3
Sveinbjörn 3
Helgi 3
Óskar Kúld 2
Guðmundur 2
Hermann 2
Ársæll 1
Í markinu varði Ástgeir mjög vel og alls 20 skot (41%)
2 flokkur á eftir að spila 3 leiki fyrir áramót og margir þeirra aðra 3 leiki í M.fl. Þessir 6 leikir verða allir spilaðir á 13 dögum þannig að það verður í nógu að snúast hjá þeim fram að jólafríi.
Við hvetjum áhugasama að fylgjast með og mæta þá sérstaklega á þá heimaleiki sem eftir eru fram að áramótum.
Áfram Selfoss
