Stelurnar hafa verið að leggja áherslu á vörn undanfarið og er það að skila sér vel. Sóknarleikurinn er enn frekar hikandi en verður eflaust mun betri með fleiri leikjum og aukinni æfingu. Margt jákvætt var þó í leik liðsins í gær og nokkrir persónulegir sigrar unnust hjá sumum leikmönnum sem voru að reyna í fyrsta skipti ákveðna hluti í leik sem hingað til hefur einungis verið gert á æfingum.
Það verður gaman að fylgjast áfram með stelpunum en það er mikill vilji hjá þeim til að bæta sig. Það vantar bara hugrekkið til að framkvæma það í leikjunum sem þær eru að gera á æfingum. Það mun án efa koma með aukinni leikæfingu.
Tölfræði úr leiknum.
Thelma 8 mörk, 2 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 varið skot og 6 brotin fríköst
Hildur 7 mörk, 3 stoðs., 2 tapaðir boltar, 1 stolinn bolti, 2 fengin víti og 2 brotin fríköst
Dagný 2 mörk, 2 tapaðir boltar, 1 frákast, 1 varið skot og 2 brotin fríköst
Guðbjörg 1 mark, 1 bolta náð, 1 varið skot og 3 brotin fríköst
Kristrún 1 mark og 1 fengið víti
Sara 1 fengið víti, 1 frákast og 9 brotin fríköst
Ragnhildur 2 brotin fríköst
Ragna 2 brotin fríköst
Áslaug varði 23 skot þrátt fyrir að spila meidd en hún missteig sig illa í upphitun þegar hún steig ofan á bolta.
Næsti leikur hjá stelpunum er á laugardaginn kl. 20:00 þegar Valur kemur í heimsókn.
