Stelpurnar í 5. flokki kvenna unnu um helgina efstu deild í sínum árgangi og eru því bestar á landinu um þessar mundir. Þær sigruðu alla sína leiki mjög örugglega og það eru þessar stelpur sem verða kjarninn í framtíðarlið Selfoss í kvennahandbolta. Liðið er undir stjórn Halldórs Stefáns Haraldssonar sem hefur gert frábæra hluti með þetta lið.
Á föstudeginum byrjðu stelpurnar á því að mæta FH og unnu þann leik mjög öruglega 12-6 eftir að hafa verið 10-3 yfir í hálfleik. Næst tóku Selfoss stelpurnar lið Fylkis í kennslustund og sigruðu þær 18-8. Seinasta lið dagsins var síðan Valur en stelpurnar höfðu tapað fyrir þeim fyrir einu mánuði síðan. Leikurinn var frekar jafn og spennandi en að lokum unnu stelpurnar 8-7. Á laugardeginum spiluðu stelpurnar fyrst við Gróttu og sigruðu þann leik mjög sannfærandi 13-6. Stjarnan varð næst í vegi Selfoss stelpna og sigraði Selfoss þann leik 8-5. Og að lokum var það síðan úrslitaleikur gegn Aftureldingu sem stelpurnar unnu 9-8 eftir æsispennandi leik.
Stelpurnar stóðu sig allar vel á þessu móti. Þær voru að spila frábæra vörn og voru með hana Ernu í markinu fyrir aftan sig í fanta formi einnig var sóknarleiknum og hraðaupphlaupunum vel stjórnað af Hrafnhildi Hönnu.
