Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

4.12.2008 | Handboltaakademía

Gestaţjálfari í handboltanum

Laugardaginn síðastliðinn fengu strákarnir í 3. flokki góðan gest í heimsókn. Drengirnir voru búnir að nauða mikið í þjálfara sínum um að fá Venna Páer (Vernharð Þorleifsson) sem gestaþjálfara. Það vildu þeir þó vita að ekki yrði neitt um handbolta á æfingunni sem og vissu menn að þessi æfing yrði ekki auðveld. Sem og raunin varð.

Vernharð stjórnaði sem sagt æfingu á laugardaginn og lét menn taka mikið á því og var það vel. Æfingarnar fóru misvel í menn og hver æfing hentaði hverjum og einum misjafnlega.

Í lok æfingar hélt Venni smá fyrirlstur um það hvernig hann æfði og hvað hann lagði á sig. Einnig svaraði hann fyrirspurnum frá áhugasömum leikmönnum. Venni er einmitt einn besti júdómaður sem Ísland hefur átt og þykir harðmenni mikið. Hann á einnig skemmtilegan feril, en stuttan þó, að baki, sem handboltamaður.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta