Miðvikudagskvöldið 3.desember s.l. var haldið svokallað félagskvöld fyrir alla krakkana sem æfa handbolta í 5. og 6. flokki stráka og stelpna. Einar Guðmundsson yfirþjálfari var með fyrirlestur um það hvaða þýðingu það hefur fyrir börn og unglinga að stunda íþróttir, um mikilvægi mataræðis, félagsþroska, liðsanda o.fl.Einnig var farið yfir framtíðarsýn og markmið. Að þessu loknu var horft á nokkur vel valin handboltamyndbönd og svo fór allur hópurinn í sund og skemmti sér hið besta.
Frábært og velheppnað kvöld, þar sem lögð var áhersla á að þjálfa aðra þætti en bara handbolta. Ráðgert er að halda fleiri svona félagskvöld seinna í vetur.