Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

7.12.2008 | Handboltaakademía

Hörmulegt tap í sirkusleik!

Í gær tapaði Selfoss-91 gegn heimamönnum í Þór í bikarkeppni HSÍ afar illa. Lokatölur 36-24 eftir að heimamenn leiddu 18-11 í hálfleik. Okkar menn sáu aldrei til sólar í leiknum og Þór vann verðskuldaðan sigur. Okkar drengir eru því úr leik í bikarnum þetta árið.

Haft var samband við Arnar Gunnarsson þjálfara drengjanna eftir leik og hann inntur álits nokkurra spurninga er brunnu á síðuritara.

Hvað viltu segja um þennan leik? Verðskuldaður sigur Þórsara. Þeir komu mun betur stemmdir í þennan leik og voru það lið er vildi meira, mun meira reyndar.

Hvers vegna er tapið svona stórt? Ég hef nú ekki tíma í BA-ritgerð þannig ég gef þér stutta lýsingu. Yfirspenna sem kristallast í mistökum sem strákarnir ekki gera annars. Rangt skotval. Vörnin sem hefur verið aðall liðsins oftast var míglek og kenni ég þar um þeim er spila þristana í vörn okkar. Lykilmenn bregðast frá A til Ö. Til að gefa enn betri mynd þá lék 92-lið mitt (B-liðið) gegn sama Þórsliði í haust og tapaði með 11 mörkum og þá vantaði okkar helsta markaskorara og varnarmann í þann leik en í dag tapar A-liðið með 12. "I rest my case!"

En hvernig var dómgæslan? Hlægileg, æðisgengin, pirrandi, tryllandi, sérstök, afar nýstárleg og allt þetta í bland og kannski meira til sem ég man ekki í augnablikinu. Þessir menn hér í dag vissu ekki hvort þeir áttu að blása í flautuna eða sjúga hana. Veit hreinlega ekki hvort það þjóni tilgangi að ræða þessi mál þar sem ég er nú ekki í miklu uppáhaldi dómara á Íslandi. Dómgæslan í dag hallaði verulega á okkur að mati nokkurra Þórsarar sem ræddu við mig eftir leik. EN...það verður ekki af heimamönnum tekið að þeir áttu sigurinn skilið. Við hefðum alltaf tapað þessum leik miðað við spilamennsku.

Svo mörg voru þau orð. Síðuritari fékk að horfa á upptöku af leiknum og komst þar með að merkilegum staðreyndum. Þórsarar fá 11 víti í leiknum á móti 4 hjá Selfossi og 6 af þeim er Þór fékk eru í besta falli fríkast, Selfoss fékk eitt þannig vítakast.

Alls eru dæmd skref 6 sinnum á Selfyssinga í leiknum, í ÖLL skiptin er það rangur dómur. Þrisvar eru Selfyssingar reknir út af sem enginn veit fyrir hvað var og Þórsarar tvisvar.

En eftir að hafa horft á leikinn er ljóst að Selfyssingar geta engum um kennt nema sjálfum sér og mega taka sig verulega saman í andlitinu. Vörnin var hörmung og nær aðeins 25 fríköstum samtals í leiknum. Í venjulegum leik er Selfoss að ná 40-50 slíkum í leik.

Það vakti athygli mína að Þórsarar tóku leikhlé 40 sekúndum fyrir leikslok og sigur þeirra löngu tryggur, í þeim tilgangi eina að niðurlægja Selfyssinga enn frekar.

Tölfræði (mörk/skot):

Matti 7/17

Andri Már 6/9

Árni 5/15

Örn 4/6

Þór 1/2

Steini 1/5

Andri Hrafn, Sigurþór, Trausti og Toni komust ekki á blað.

Sverrir 3/20 (15%)

Helgi 16/33 (48%)

Áfram Selfoss!


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta