Selfoss og Stjarnan áttust við í 8-liða úrslitum Eimskipsbikarsins í Vallaskóla s.l. mánudagskvöld. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann. Svo fór að Selfoss vann með einu marki 32:31 eftir að Birkir Fannar varði vítaskot á síðustu mínútu leiksins.
Selfyssingar voru stressaðir í byrjun og lentu undir 0:5. Með góðri baráttu og dyggum stuðningi áhorfenda tókst Selfossliðinu að komast inn í leikinn og var jafnt á flestum tölum lengi vel. Staðan í hálfleik var 14:13 fyrir Selfoss.
Þegar 15 sekúndur voru eftir var staðan 28:28 og fengu Stjörnumenn tvö tækifæri til að gera út um leikinn. Góð vörn og góð markvarsla Selfoss kom í veg fyrir það og því var framlengt. Í framlengingunni voru Selfyssingar sterkari og unnu að lokum eins marks sigur 32:31. Á síðustu sekúndu framleikingarinnar fékk Stjarnan víti sem Vilhjálmur Ingi tók. Birkir Fannar markvörður Selfoss gerði sér lítið fyrir og varði vítið og þar með var sigur Selfoss staðreynd.
Selfoss átti frábæran leik sem skilaði liðinu í 4-liða úrslit bikarkeppninnar. Markverðir Selfoss áttu góðan dag. Sebastian spilaði fyrstu 50 mínúturnar og Birkir kom svo til leiks í lokin og varði hreint frábærlega. Þá átti Mikalonis stórleik, skoraði 8 mörk og skilaði varnarvinnunni frábærlega.
Mörk Selfoss:
Bjarki Már 10,
Mikalonis 8,
Atli 5,
Mikal 5,
Hörður B. 3
Halldór 1.
Sebastian varði 17 skot og Birkir Fannar 10.
Mörk Stjörnunnar:
Vilhjálmur 8,
Fannar Þór 8,
Kristján 5,
Guðmundur 4,
Fannar Örn 4,
Ragnar 1
Hrafn 1.
Svavar varði 13 skot og Styrmir 1.
Lið Selfoss er nú komið í 4-liða úrslit ásamt Gróttu, Val og FH. Í viðtali kvaðst Sebastian þjálfari vonast eftir að fá Gróttu í undanúrslitum því lið Vals og FH væru firnasterk. Undanúrslitaleikirnir fara fram sunnudaginn 8. febrúar. Sjálfur úrslitaleikurinn verður laugardaginn 28. febrúar og fer samkvæmt venju fram í Laugardalshöllinni.
