Í hádeginu í dag mætti vaskur hópur þjálfara og íþróttafólks ásamt Erni Guðnasyni framkvæmdastjóra í Sunnulækjarskóla og átti góða stund með krökkunum í 8. bekk. Markmið heimsóknarinnar var að ræða við krakkana um íþróttir og forvarnir. Tókst fundurinn mjög vel og hlustuðu krakkarnir af athygli og spurðu svo um ýmislegt sem þeim var hugleikið í fundarlok.
Frá félaginu mættu, auk Arnar, Gunnar Borgþórsson knattspyrnumaður, Linda Ósk Þorvaldsdóttir fimleikakona, Dagur Fannar Magnússon frjálsíþróttamaður og Halldór Haraldsson handknattleiksmaður. Þau þjálfa einnig öll hjá félaginu nema Dagur Fannar og Örn. Heimsóknin var liður í forvarnarvinnu sem Umf. Selfoss hefur staðið fyrir undanfarið. Þess má einnig geta að ný forvarnarstefna félagsins var samþykkti af aðalstjórn félagsins fyrir skömmu.
