Selfyssingar í 92-liðinu unnu í gær UMFA á útivelli 29-23 eftir að hafa leitt 15-12 í hálfleik. Selfoss var allan tímann sterkari en gátu leikið mun betur en þeir gerðu en léku þó mun betur en undanfarið. Menn eins og Orri og Einar náðu sér strik og skoraði sá fyrrnefndi nokkur mörk með þrumuskotum sem menn hafa saknað í langan tíma.
Selfoss náði mest átta marka forystu og og var sigurinn aldrei í hættu. Slök nýting dauðafæra kom í veg fyrir að sigurinn yrði ekki stærri. Selfoss er á toppi deildarinnar líkt og 91-liðið í deildinni fyrir ofan.
Orri og Einar léku hvað bestu hjá okkar mönnum ásamt Helga markmanni. Stubbarnir Árni Felix og Jóhann Gylfi léku einnig afar vel sem og Anton og Karlsson.
Tölfræði, mörk/skot og fleira:
Orri 8/12, 5 stoðsendingar og 8 brotin fríköst
Einar 7/9, 2 stoð og stal 2 boltum
Guðbjörn 4/9
Ingvi 3/7
Toni 3/6
Karlsson 2/2 og 11 brotin fríköst
Ketill 1/2
Danni 1/2
Jóhann Gylfi 14 brotin fríköst
Árni Felix 6 brotin fríköst og 2 stoðsendingar
Helgi varði 24 og fékk á sig 23 (51%)
| HK | - | FH | 35 | : | 32 |
| Haukar | - | Fram | 31 | : | 24 |
| HK | - | Selfoss | 30 | : | 31 |
| Haukar | - | Valur | 23 | : | 17 |
| Selfoss | - | FH | 26 | : | 25 |
| Fram | - | Valur | 25 | : | 29 |
| 1.-2. sæti: | |||||
| Selfoss | - | Haukar | 34 | : | 32 |
| 3.-4. sæti: | : | ||||
| HK | - | Fram | 38 | : | 34 |
| 5.-6. sæti: | |||||
| FH | - | Valur | 24 | : | 23 |
Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
