Í frétt í Morgunblaðinu í dag er athyglisvert viðtal við Wolfgang Gütschow þýskan umboðsmann sem heldur því fram að íslenski skólinn í handbolta sé einn sá besti í heimi og að íslendingar ættu á næstu árum eftir að eignast enn fleiri atvinnumenn í handbolta. Selfoss var í vor verðlaunað fyrir besta barna- og unglingastarfs landsins og Selfoss er í toppbaráttu í nær öllum árgöngum. Selfoss mun því að öllu líkindum eignast þó nokkra atvinnumenn í handbolta á komandi árum.
,,Silfurverðlaunin á Ólympíuleikunum í Peking í sumar geta verið upphafið að gullöld í íslenskum handknattleik," segir Wolfgang Gütschow, þýskur umboðsmaður handknattleiksmanna, í samtali við Morgunblaðið.
Gütschow hefur unnið náið með mörgum íslenskum handknattleiksmönnum og þjálfurum á síðustu árum. Hann hefur margoft komið til Íslands og segir fátt vera meira heilsubætandi fyrir líkama og sál en gönguferðir á Snæfellsnesi á bjartri íslenskri sumarnótt.
„Að mínu mati er framtíð íslensks handknattleiks björt. Margir efnilegir handknattleiksmenn eru á Íslandi auk þess sem landsliðsþjálfarinn hefur úr góðum hópi leikmanna að velja sem allir eru á góðum aldri. Íslenska landsliðið hefur alla burði til þess að vera í allra fremstu röð næstu tíu árin.
Mér sýnist margir ungir handknattleiksmenn vera á Íslandi og sennilega eiga íslensk félagslið í vændum betri „uppskeru" en nokkru sinni fyrr, altént betri en um langt árabil," segir Gütschow sem fylgist vel með íslenskum handknattleik og dvaldi hér á landi í nokkra daga í síðasta mánuði og sá marga kappleiki á þeim tíma." Tekið af www.mbl.is
