Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

15.12.2008 | Handbolti

Slćmt tap í Mosfellsbć

Það var augljóst strax á upphafsmínútunum í hvað stefndi. Vörn Selfyssinga var afar slök og þá sjaldan að bolti vannst urðu hraðaupphlaupin hikandi þannig að Afturelding komst ávallt til baka. Þá var sóknarleikurinn afar hægur og einhæfur. Reyndar fengust fín færi fyrir skytturnar inn á milli en skotnýting okkar manna var hræðileg. Alls 33 skot misfórust þar af 25 frá skyttunum. Alls fóru 12 skot framhjá markinu. Afganginn varði markvörður Aftureldingar ýmist með tilþrifum eða auðveldlega þar sem mörg skotana voru afar slök. Selfossliðið hefur skorað liða mest í deildinni í vetur og fyrir þennan leik var liðið með 33,1 mörk skoruð að meðaltali í leik. Þar sem sóknarleikurinn brást þá átti liðið aldrei möguleika í leiknum.

Það var einna helst þjálfarinn okkar sem skilaði einhverju í fyrri hálfleik en þá varði hann 11 skot í fjarveru Birkis sem var veikur. Hins vegar var augljóst að hann var sprunginn í seinni hálfleik og greinilega ekki með þrek í 60 mín., hvað þá í 2 leiki á einni viku. Hann klukkaði aðeins 2 bolta í seinni hálfleik og Ástgeir 1 þær 10 mín. sem hann spilaði. Það er óviðunandi að liðið sé einungis með 3 bolta varða á 30 mín. Sérstaklega þar sem vörnin lagaðist mikið í seinni hálfleik og voru Aftureldingsmenn í miklum vandræðum með sóknarleik sinn en þá brást markvarslan hjá okkar mönnum og boltar láku inn sem gáfu Aftureldingu frekar ódýr mörk þannig að allt lagðist á eitt til þess að okkar menn sáu aldrei til sólar. Liðið saknaði því Birkis mikið í seinni hálfleik en hann er með 47% markvörslu í leikjum vetrarins.

Nú er komið jólafrí og þar sem Grótta tapaði sínum leik líka þá eru örlög Selfossliðsins ennþá í þeirra höndum þannig að ekki þarf að treysta á aðra til að ná markmiðunum. Það er þó ljóst að liðið þarf samt að nota pásuna vel því að prógramið eftir áramót er gríðarlega stíft hjá stærstum hluta leikmanna liðsins því að þeir eru langflestir ennþá í 2 flokki.

Tölfræðin:
Michal 6 mörk úr 7 skotum, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 frákast, 3 fengin víti, 1 varið skot og 2 brotin fríköst
Hörður 3 mörk úr 4 skotum, 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 1 frákast og 1 brotið fríkast
Sjóli 3 mörk úr 4 skotum, 1 frákast, 1 varið skot og 4 brotin fríköst
Mikalonis 2 mörk úr 9 skotum, 5 stoðs., 1 tapaður bolti, 3 fráköst, 2 varðir boltar og 3 brotin fríköst
Ragnar 2 mörk úr 10 skotum, 4 stoðs., 1 tapaður bolti og 1 brotið fríkast
Bjarki Már 2 mörk úr 7 skotum, 1 tapaður bolti, 1 frákast og 5 brotin fríköst
Atli  2 mörk úr 11 skotum, 3 stoðs., 3 tapaðir boltar, 2 boltum náð, 1 frákast, og 8 brotin fríköst
Helgi 1 mark úr 1 skoti, 1 tapaður bolti, 2 fráköst og 1 brotið fríkast
Eyþór 0 mörk úr 1 skoti
Halldór 2 stoðs.
Einar 1 frákast 
Kúldi 1 frákast, 2 varin skot og 4 brotin fríköst
Sebastian 13 (35%), 1 stoðs.
Ástgeir 1 (25%)

Niðurstaðan fyrir jól er því 8 sigrar í deild og 3 töp. 16 stig komin í hús sem þýðir 2-3 sæti í deildinni og aðeins 2 stigum frá toppsætinu. Þá er liðið komið í undanúrslit í Bikarnum eftir 3 sigurleiki. Sú var tíðin að Selfyssingar fengu ekkert nema ósigra í uppskeru. Nú er staðan orðin þannig að liðið vinnur yfirleitt alla leiki og töpin eru færri með hverju árinu sem líður og þegar þau koma eru allir ósáttir við það. Nú er öldin önnur. Selfoss er orðinn alvöru klúbbur.

Áfram Selfoss!


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta