4. flokkur kvenna vann Víking frá Reykjavík með 5 mörkum 21:16. Víkingsstúlkur voru betri í fyrri hálfeik og voru yfir 6:10 í háfleik. En okkar stelpur komu mun betur stemmdar í seinni hálfleikinn og sigruðu að lokum með 5 mörkum eins og áður sagði.
Margir leikmenn sem að eru annaðhvort nýbyrjaðir að æfa eða hafa fengið lítið að spila í vetur fengu að spreyta sig og stóðu sig flestar með prýði og greinilegt að miklir hæfileikar liggja í þessu liði.
Stelpurnar eru núna eftstar í deildinni með 9 stig af 10 mögulegum og fara því í jólafríið á toppnum.
Stelpurnar skiluðu allar sýnu í dag þó að Hrafnhildur Hanna og Birta Rós hafi verið þeirra sterkustu menn. Einnig var gaman að sjá Ólöfu Jónu sem hefur ekki æft lengi en skilaði sýnu hlutverki á miðjunni mjög vel og skoraði meðal annars mark.
Stelpurnar verða núna að nýta jólafríið í að æfa vel og laga það sem betur má fara og mæta síðan eftir jólafríið og fara alla leið.
Tölfræði
Kristrún Steinþórsdóttir 5 mörk úr 7 skotum, 6 brotin fríköst, 1 unnin bolti og 1 frákast.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 5 mörk úr 6 skotum, 5 stoðsendingar, 4 brotin fríköst og 6 unnir boltar, Hrafnhildur spilaði einungis seinni hálfeikinn.
Gerður Ósk Ævarsdóttir 3 mörk úr 3 skotum, 1 stoðsending, 5 brotin fríköst og 1 unnin bolti.
Esther Hallsdóttir 3 mörk úr 3 skotum, 1 stoðsending, 13 brotin fríköst og 2 unnir boltar.
Díana Sigmarsdóttir 3 mörk úr 5 skotum, 1 stoðsending og 6 brotin fríköst.
Ólöf Jóna Ævarsdóttir 1 mark úr 1 skoti og 3 brotin fríköst.
Guðrún Bína Ingólfsdóttir 1 mark úr 1 skoti.
Jenný Jóhannsdóttir 0 mörk úr 3 skotum, 2 stoðsendingar og 9 brotin fríköst.
Guðlaug Stella Hafsteinsdóttir 2 brotin fríköst.
Birta Rós Antonsdóttir varði 15 skot og fékk 16 mörk á sig, nánast 50% markvarsla eða (48%)
Næsti leikur er útileikur gegn Fram 17. janúar.
