Beint á leiðarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

17.12.2008 | Handboltaakademía

92-liðið tapaði fyrir FH

Okkar menn töpuðu gegn FH um helgina, en þetta sama lið varð Íslandsmeistari í 4. flokki A-liða eftir skrautlegan úrslitaleik gegn KA síðastliðið vor. Hafnfirðingar hafa að flestra mati á að skipa langbesta liðinu í deildinni og eru þar leikmenn sem eiga mun meira heima í efri deildar liði þeirra. Því var ljóst að um erfiðan leik yrði að ræða.

Hafnfirðingar unnu, eftir hetjulega baráttu okkar manna, 26:28, eftir að staðan í hálfleik hafi verið 10:13. Í þessum leik brást vörn liðsins sem og markvarslan. Eins skoraði liðið ekki á 10 mínútna kafla í fyrri hálfleik. Það sem gladdi helst augað var góð innkoma Guðbjarnar Tryggvasonar og seinni hálfleikur Tona. Þá átti Orri góðan leik.

Tölfræði, mörk/skot - annað:
Orri 8/14 og 10 brotin fríköst
Guðbjörn 8/9, 4  stoðsendingarog 4 tapaðir boltar
Toni 6/11
Einar 3/9, 3 stoðsendingar og 2 stolnir boltar
Danni 1/2
Karlsson 1/2 og 5 brotin fríköst
Ingvi 0/1, 1 bolta stolið, 1 fríkast
Keli 0/0, 2 brotin fríköst
Jói Gylfi 4 brotin fríköst
Árni Felix lék minna að þessu sinni
Helgi varði 14 skot og fékk á sig 28 (33%) sem er langt undir hans meðaltali.


Á næstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta