Strákarnir í eldra liði 3.flokks, eða 91-liðið vann HK-ingar fyrir stuttu. Eftir jafnræði framan af stungu okkar menn af í lok fyrri hálfleiks og leiddu heimamenn 19-13. Mestur varð munurinn 30-17 í síðari hálfleik en lokatölur þó 37-26.
Allir léku mikið í leiknum og einungis Matti lék undir 30 mínútum, reyndar sökum meiðsla sem hann hlaut í fyrri hálfleik en hann fór úr lið á fingri. Það er þó huggun harmi gegn að meiðslin er á vinstri hönd. Vinstri hornamennirnir Andri Már og Trausti skiptu hálfleikum á milli sín og léku báðir afar vel, Þór rifjaði upp gömul kynni við skyttuna og Sverrir varði frábærlega. Aðrir leikmenn eiga mikið inni.
Tölfræði: mörk/skot - fleira
Árni Steinn: 8/15, 5 tapaðir boltar, 2 stolnir og 4 brotin fríköst
Örn 6/10, 6 stoðsendingar, 5 tapaðir og 6 brotin fríköst
Þór: 5/8 og 8 brotin fríköst
Matti: 4/5, 2 stoðsendingar og 7 brotin fríköst
Trausti 4/6
Mási: 3/4
Sissi (Zodiac): 2/3 og 11 brotin fríköst
Steini 2/8 og 3 brotin fríköst
Toni 2/2
Andri H: 1/4 og 7 brotin fríköst
Sverrir 22 skot varin og þar af 3 víti og fékk á sig 20 (52%)
Helgi varði 8 og fékka sig 6 (57%)
