Á uppskeruhátíð ÍTÁ sem fram fór í gærkvöldi veitti ÍSÍ fulltrúum handknattleiks- og knattspyrnudeildar Umf. Selfoss viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndardeildir. Báðar deildirnar eru vel að þessu komnar, enda hafa þær verið að skila frábæru og vel skipulögðu starfi undanfarin ár. Auk þess hafa þær skilað úr sínu starfi nokkrum unglingalandsliðsmönnum á hverju ári. Við þetta sama tækifæri veitti Sveitarfélagið Árborg og HSK umræddum deildum veglegan peningastyrk. Þess má líka geta að handknattleiksdeild Selfoss fékk fyrr á þessu ári verðlaun frá HSÍ fyrir besta yngri flokka starf á landinu.
Á myndinni hér til hliðar má sjá Hall Halldórsson, formann handknattleiksdeildar, Jón Gíslason, gjaldkera knattspyrnudeildar og Engilbert Olgeirsson, stjórnarmann ÍSÍ með viðurkenningarnar og fyrirmyndarfánann.
Tómas
