Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

2.2.2009 | Handboltaakademía

Gull, silfur og brons hjá 6. flokki drengja

Selfoss-strákarnir í 6. flokki A-liða urðu deildarbikarmeistarar um síðastliðna helgi, en mótið fór fram í Digranesi í Kópavogi. Öll lið landsins voru þar mætt til leiks á sjálfstæðu móti þar sem keppt er um einn titil. B-liðið varði í þriðja sæti og C-liðið vann til silfurverðlauna. 

Í A-liðinu voru þeir Eiríkur, Oliver, Elver, Richard, Ómar, Hergeir, Adam, Bjarki og Gísli. Þeir unnu Val, Fjölni og Hauka örugglega á laugardeginum, síðan FH og Þór í milliriðlinu á sunnudeginum og KR í hreinum úrslitaleik 12-10. Þessi piltar hafa ekki tapað leik í vetur og hafa forustu til Íslandsmeistaratitils. 

B-liðið er eingöngu skipað leikmönnum á yngra ári, þá Aron, Jökull, Andri  Páll, Hlynur, Teitur, Bjarki R, Trausti og Bjartur. Þeir unnu Fjölni og Þór í undanriðli, en töpuðu nokkuð óvænt fyrir nýju liði Fram á laugardeginum. Þeir unnu síðan Val og Þór stórt í milliriðli en urðu að sætta sig við að leika um 3. sætið við Gróttu sem þeir unnu 11-6. Tapið gegn Fram var fyrsta tap strákana í vetur en þeir eru með örugga forustu í keppninni til Íslandsmeistara.  

Í flokki C-liða vann Selfoss alla sína leiki frekar stórt í undankeppninni, en tapaði síðan fyrir ÍBV í dramatískum úrslitaleik í framlengingu eftir að hafa náð þriggja marka forskoti þegar stutt var eftir. Í C-liði voru Sindri, Hákon, Magnús, Máni, Alexander, Bjarki Þór, Helgi, Ernir og Þráinn.  

Sem sagt gull, silfur og brons á deildarbikarmótinu, en nú eru tvær umferðir eftir á Íslandsmótinu, fyrst í Reykjavík í mars og lokaumferðin í Vestmannaeyjum fyrstu helgina í maí.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

  • Ragnarsmótið 2010:

HK - FH 35 : 32 
Haukar - Fram 31 : 24
HK - Selfoss 30 : 31
Haukar  - Valur 23 : 17
Selfoss - FH 26 : 25
Fram -  Valur 25 : 29
1.-2. sæti:          
Selfoss - Haukar 34 : 32
3.-4. sæti:       :  
HK - Fram 38 : 34
5.-6. sæti:          
FH - Valur 24 : 23

Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK

byko.islyfogheilsa.iswww.olis.iswww.orkusalan.islandsbankinn.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta