Á fimmtudaginn síðastliðinn unnu 91-strákarnir Hauka 46-22, en í leikhléi stóð 18-11. Þetta lið átti að leika gegn Val í gær í Reykjavík en var frestað sökum þess að Valsmenn ná ekki í lið sökum meiðsla. Líklega fer sá leikur fram laugardaginn næsta.
Af þessu liði er það að frétta að Matthías er að vera góður af sínum meiðslum sem og Aðalsteinn og Andri Hrafn og verða þeir vonandi 100% í næsta leik. Sigurður Már hefur ekki enn fengið grænt ljós frá læknum eftir krossbandsslit en vonandi eru ekki nema fáir dagar í að við sjáum hann aftur í búning.
Tölfræði gegn Haukum:
Mörk/skot, annað
Árni Steinn 13/16, 4 stoðsendingar, 5 fráköst og 6 brotin fríköst
Örn 11/14 og 6 stoðsendingar
Matti 4/5
Trausti 4/6
Sissi 3/3, 12 brotin fríköst og 4 varin
Andri Már 3/4
Þór 3/4, 6 brotin fríköst
Toni 3/3
Andri Halls 3/4
Helgi varði 15 en fékk á sig 14
Sverrir varði 10 en fékk á sig 8
