Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

2.2.2009 | Handboltaakademía

Sigur hjá 92 gegn Ţrótti

Um helgina léku á Selfossi 92-liðið gegn Þrótti. Laugardalsmenn hafa góðu liði á að skipa og var alveg á hreinu að ekkert yrði gefið í leiknum. Í lið okkar vantaði Erling Snæ, Árni Felix, Guðbjörn Tryggvason og Einar Sverrisson, sem fékk þá góðu hugmynd að skella sér á snjóbretti með ekki skemmtilegum afleiðingum. Svo er Orri Davíðsson farinn til Nýja Sjálands sem skiptinemi og verður þar í 11 mánuði. Hans verður sárt saknað og kemur fljótlega smá pistill um þann góða dreng.

Selfoss vann leikinn 28-19 eftir að þeir leiddu í hálfleik 14-8. Selfoss hafði alltaf undirtökin og var leikurinn aldrei í neinnu hættu. Þökk sé frábærri 3-2-1 og markvörslu Helga Legolas. 22 skot varin í leiknum og 67 brotin fríköst sem er afar gott enda uppskeran sigur þrátt fyrir stirðlegan sóknarleik á köflum. Gleðilegt er að sjá Anton leika með sjálfstrausti og spila almennilega vörn. Danni ákvað að rifja upp hvernig á að spila handbolta og hr. áreiðanlegur var afar drjúgur. Þá ákvað Keli að leika með sjálfstrausti sem hann hefur mikið skort og skoraði hann fimm góð mörk. Ingvi Tryggvason lék góða vörn og sýndi að þar er hann ekki alveg glataður.

Tölfræði, mörk/skot, annað

Anton 6/8, 6 stoðsendingar og 8 brotin fríköst
Tossi 5/9 og 10 brotin fríköst
Karlsson 5/6 og 8 brotin fríköst
Keli 5/7 og 5 brotin fríköst
Danni 3/5, 13 brotin fríköst og 4 stolnir boltar
Kammi 2/3
Bobby 1/2 og 11 brotin fríköst
Ingvi 1/5 og 9 brotin fríköst
Legolas 22 varin og fékk á sig 19 mörk


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta