A-lið 5. flokks kvenna, yngra ár eða stelpur fæddar árið 1996 og yngri, léku til úrslita á deildarbikarmóti HSÍ og höfnuðu í 2 sæti.
Stelpurnar hófu keppni á Laugardegi og sigruðu alla þrjá leikina gegn Fjölni, FH og ÍR 3 mjög sannfærandi eða 17-1, 17-2 og 22-2. Á Sunnudeginum byrjuðu þær eldsnemma á því að leggja mjög sterkt lið Fram að velli 9-7 og enduðu svo á KR 14-4 og sigruðu því riðill sinn mjög svo sannfærandi með 10 stig. Stelpurnar komust því áfram í milliriðil. Þar byrjuðu þær á því að vinna ÍBV sannfærandi 16-6 og loks Gróttu 9-5 og var gaman að sjá stelpurnar innbyrgja þann sigur enda Grótta oft verið erfiður biti fyrir þessar stelpur. Selfoss stelpurnar sigruðu því milliriðill með fullt hús stiga eða 6 stig þar sem að Fram fylgdi þeim í milliriðilinn ásamt stigunum.
Þar næst var komið að úrslitaleiknum en hann var gegn geysisterku liði ÍR. Þær hafa verið ríkjandi meistarar í þessum aldursflokki undanfarin ár. Leikurinn var jafn og spennandi allan tíman en Selfoss stelpurnar komust í 3-1 og var staðan í hálfleik 3-2. Seinni hálfleikur reyndi verulega á taugar viðstaddra þar sem liðinn skiptust á að skora. Það voru síðan ÍR stelpurnar sem voru einu marki yfir þegar 20 sekúndur voru til loka leiks, Selfossstelpurnar unnu boltann og flýttu sér í sókn þar sem að Thelma Björk Einarsdóttir sótti á en skot hennar hafnaði í stönginn og út. Ótrúleg óheppni.
Allir leikmenn liðsins spiluðu vel á þessu móti og mega stelpurnar vera sáttar með sinn árangur enda byrjaði meirihluti liðsins að æfa í haust ásamt því að tveir leikmenn sjötta flokks spiluðu veigamikil hlutverk í liðinu. Liðið er skipað þeim :
Hörpu Solveigu, Huldu Dís, Thelmu Björk, Þuríði, Fjólu Dóru, Ernu, Andreu, Halldóru og Helgu.
En þær Thelma, Þuríður og Andrea eru þær einu í 5 flokki og hafa æft lengur en 4 mánuði.
Það er því greinilegt að ótrúlegur efniviður er til uppbyggingar á Selfossi í kvennahandboltanum þar sem að eldra árið urðu deildarmeistarar í sterkustu deild fyrir nokkrum vikum. Virkilega gaman er af þessu enda langt síðan svona mikil gróska hefur verið í kvennadeildinni á Selfossi.
B-liðinu gekk einnig ágætlega en í því eru aðalega leikmenn 6. flokks ásamt nokkrum úr 5. flokki. B-liðið var í mjög sterkum riðli og byrjuðu á því að tapa naumt fyrir A-liði ÍBV, því næst unnu þær Fylki. Næst seinasti leikurinn var gegn sterku liði Gróttu sem A-liðið vann með naumyndum, Stelpurnar töpuðu þeim leik stórt en komu svo til baka og töpuðu naumlega fyrir A-liði Hauka, hreint út sagt mjög góður árangur og mega þær eins og A-liðið vera sáttar með sína frammistöðu.
Liðið er skipað þeim, Bryndísi, Kristínu Rut, Margréti Leu, Dagmar, Elenu, Steinunni, Katrínu Ósk, Hörpu Hlíf og Díönu
Þjálfarar liðanna eru þeir; Halldór Stefán Haraldsson og Bjarki Már Elísson
