Leikurinn byrjaði vel og það var greinilegt að menn ætluðu ekki að byrja þennan leik eins og síðasta leik á móti Fjölni þar sem leikurinn var jafn fram yfir hálfleik. Núna höfðu menn lært sína lexíu og var staðan orðin 8 - 0 eftir ca. 12 mín. leik. Þá kom kæruleysi í leik okkar manna þannig að jafnt var það sem eftir var hálfleiksins. Staðan í hálfleik var 15 - 7.
Menn spýttu svo aftur í lófana í síðari hálfleik og tóku vel á því og sérstaklega var gaman að sjá hvað allir höfðu gaman af því að spila þannig að úr varð ágætis skemmtun fyrir áhorfendur hússins. Síðari hálfleikur fór 23 - 13 fyrir Selfoss og lokatölur því 38 - 20.
Meiddir leikmenn sem ekki voru með að þessu sinni voru Baldur og Guðni eins og áður. Þá spiluðu Guðmundur, Bjarki, Atli, Sjóli, Hermann, Birkir og Sebastian ekki vegna meiðsla. Loks var Ragnar hvíldur þar sem mikið álag hefur verið á honum uppá síðkastið.
Helgi Hlynsson markmaður úr 3 flokki spilaði sinn fyrsta leik fyrir liðið og stóð sig vel þær 15 mín. sem hann spilaði enda var hann með 53% markvörslu. Þá var líka gaman að sjá Sævar Þór Gíslason spila aftur fyrir félagið. Þetta var hans fyrsti hanboltaleikur í svo langan tíma að menn muna ekki hversu langt er síðan það var að hann spilaði fyrir aðallið félagsins. Sævar spilaði allan síðari hálfleik og sýndi að hann hefur engu gleymt enda alltaf í toppformi. Sævar skoraði 3 mörk úr 4 skotum.
Helsta tölfræði:
Michal 7 mörk, 3 fengin víti og 7 brotin fríköst
Eyþór 6 mörk og 1 stoðsending
Sveinbjörn 4 mörk og 2 stoðsendingar
Helgi 4 mörk, 6 stoðsendingar og 4 brotin fríköst
Mikalonis 4 mörk, 5 stoðsendingar, 5 varðir boltar og 10 brotin fríköst
Hörður 3 mörk
Sævar Þór 3 mörk, 2 stoðsendingar og 1 fengið víti
Halldór 3 mörk 10 stoðsendingar og 1 fengið víti
Ársæll 2 mörk
Einar 1 mark og 2 fengin víti
Atli Hjörvar 1 mark og 12 brotin fríköst
Óskar Kúld 1 stoðsending, 3 varðir boltar og 14 brotin fríköst
Ástgeir varði 19 skot (59%)
Helgi varði 8 skot (53%)
Áfram Selfoss
