Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

2.2.2009 | Handboltaakademía

2 flokkur vann Stjörnuna á útivelli

Liðið saknar enn Baldurs, Bjarka, Sjóla, Hermanns, Birkis og Guðmundar vegna meiðsla og þá voru bræðurnir Einar og Helgi í leikbanni. Eins og áður sagði náðist að boða 4 stráka úr 3 flokki til þess að hafa eitthvað backup í leiknum og var það dýrmætt því með því var hægt að dreifa álaginu aðeins.

Stjörnumenn mættu ákveðnir til leiks enda nýbúnir að tapa illa á Selfossi. Þeir voru miklu mun sprækari að þessu sinni og leikurinn var jafn þar til 5 mín. voru leiksloka að Selfyssingar náðu að slíta sig frá þeim á nokkrum augnablikum. Mestu munaði þar um að Ástgeir varði 2 víti með skömmu millibili sem okkar menn náðu að nýta sér til að ná forskoti.

Mikið mæddi á fáum leikmönnum og ekki hjálpaði það heldur að Kúldi gat bara spilað vörn vegan meiðsla sem hann hlaut á hægri öxl í leik á móti Fjölni með meistaraflokki síðastliðinn föstudag. Þá leist mönnum ekkert á blikuna þegar Eyþór missteig sig um miðjan fyrri hálfleik. Hann beit þó á jaxlinn óg kláraði leikinn en óljóst er á þessari stundu hvernig ástatt er með ökklann á honum uppá framhaldið. Það virðist því sem óheppnin elti liðið um þessar mundir.

Það var því mikill sigur að klára þennan erfiða leik sem tók verulega á en það má kannski segja að liðið sé að sjóast í því að klára jafna leiki eins og bikarleikinn á móti UMFA síðasta mánudag. Þetta er algjört lykilatriði uppá framtíðina að læra að vinna slíka leiki.

 

Tölfræði:

Sveinbjörn 11 úr 13, 2 tapaðir boltar, 1 frákast, 4 fengin víti og 2 brotin fríköst

Raggi 10 úr 14, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 frákast, 1 varinn bolti og 2 brotin fríköst

Eyþór 7 úr 10, 4 stoðs., 2 tapaðir boltar, 1 bolta náð, 2 fengin víti og 2 brotin fríköst

Sæli 3 úr 5, 1 stoðs., 3 fráköst og 1 fengið víti

Halli 2 úr 2, 5 stoðs., 3 tapaðir boltar, 1 frákast, 1 fengið víti og 1 brotið fríkast

Atli 1 bolta náð, 2 fráköst, 2 varðir boltar og 5 brotin fríköst

Kúldi 1 brotið fríkast

Andri Már 1 tapaður bolti

Árni Steinn 1 brotið fríkast

Ástgeir varði 18 skot þar af 2 víti (42%)

Helgi varði ekki skot en fékk á sig 3 mörk

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta