3.2.2009 | Handbolti
6.fl kvenna lék um helgina
A-lið : Átti strax leik við FH snemma á laugardagsmorguninn og var greinilegt að stelpurnar mættu ekki tilbúnar til leiks né á réttum tíma fyrir leik og það er eitthvað sem þarf að bæta. Leikurinn endaði með tveggja marka sigri FH 9-7 eftir að Selfoss hafði leitt nánast allan leikinn, þetta þýddi að Selfossi þurfti að vinna næstu tvo leiki sem voru við Fram og Fjölni. Leikurinn við Fjölni var stelpunum lítil fyrirstaða og sigruðu þær 5 marka sigur 14-9. Fram er með besta lið á landinu í þessum aldursflokki og var leikurinn því mjög erfiður og töpuðu Selfoss naumlega 11-9. Mjög svekkjandi að liðið hafi ekki komist lengra enda mun betri en þessi úrslit sýna.
B-lið : Í B-liðinu eru nánast allt stelpur sem eru nýbyrjaðar og eru að bæta sig með hverju móti. Fyrsti leikur var við HK sem tapaðist 9-0 enda um A-lið að ræða hjá HK. Næst var leikur við ÍBV og báru stelpurnar glæsilegan sigur úr bítum 8-6 og sigruðu Gróttu í kjölfarið 8-1 og tryggðu sér þar með sæti í milliriðlum, frábært hjá þessum stelpum. Strax morguninn eftir var leikur við Fram og endaði sá leikur 5-5 samkvæmt markaskorun en voru bara skráð 4 mörk hjá selfoss en var alveg augljóst að um jafntefli hafi verið að ræða. Þjálfari Selfoss ræddi við mótstjóra sem var að dæma leikinn og þjálfara hins liðsins og þóttust þeir ekkert vita og þar með sat þó allir foreldrar í húsinu hafi talið 5-5, því mjög svekkjandi tap 4-5 en þetta var spurning um hvort liðið hefði spilað um verðlaun. Næsti leikur í milliriðli var við Stjörnuna og unnu Selfoss sannfærandi sigur 7-3 og enduð því í 5.sæti á mótinu. Glæsilegur árangur hjá stelpunum sem hafa sýnt þvílíkar framfarir síðustu mánuði.