Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

4.2.2009 | Handbolti

Birkir markmađur svarar nokkrum spurningum

Markmaðurinn okkar ungi og skemmtilegi Birkir Fannar Bragason, sem sumir kjósa að kalla Bikk Van Quick, tók vel í það að svara nokkrum spurningum varðandi leik Selfoss gegn Gróttu. Sá leikur er í undanúrslitum bikarkeppni HSÍ og fer fram á morgun, föstudaginn 6. feb. kl. 19:30.

Hvernig leggst leikurinn í þig? Leikurinn leggst vel í mig og vona það besta. Þetta verður geggjað stuð.
 
Nú ertu búinn að vera meiddur. Verðuru orðinn góður á föstudaginn? Eða spilar gamli bara? Já það er búið að vera smá vandræði með mig síðustu vikur, en mér verður tjaslað saman með teipi og hlífum. Ég ætla að hafa þann gamla á bekknum eins og hægt er.

Hvernig metur þú stöðuna fyrir þennan leik? Verður þetta ekki gríðarlega erfiður leikur gegn toppliði deildarinnar? Staðan er bara góð. Þessi tvö lið eiga jafna möguleika á sigri, en auðvitað ætlum við að taka þetta. Þegar komið er í undanúrslitaleik í bikarnum eru ekki  hægt að tala um auðvelda leiki. En jú, þetta verður gríðalega erfiður leikur.
 
Viltu spá einhverju? Já... sigri fyrir Selfoss
 
Einhver skilaboð til áhorfenda fyrir leik? Já. Skemmtið ykkur vel og rífið þakið af húsinu.... ÁFRAM SELFOSS....

Við þökkum Birki fyrir. 
Á morgun kemur svo viðtal við Arnar Gunnarsson, aðstoðarþjálfara liðsins.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta