Síðuritari hafði samband við Arnar Gunnarsson, aðstoðarmann Sebastíans Alexandersonar, vegna leiks Selfoss gegn Gróttu annað kvöld í bikarkeppni HSÍ. Arnar eða Addi eins og flestir þekkja hann á Selfossi tók vel í það að svara nokkrum laufléttum spurningum.
Hvernig er staðan á hópnum fyrir leikinn á morgun? Alveg þokkaleg, reyndar mikið búið að vera um meiðsli hjá okkur, en það verða 14 menn á skýrslu og sjö sem byrja inn á. Það er því ekkert að óttast.
Hvernig metur þú möguleika Selfoss fyrir þennan leik? Fyrir alla leiki er ég bjartsýnn og sannfærður um sigur í hvert sinn. Grótta er aftur á móti með alla sína menn heila og er með betra lið en við. Það segja þeir sjálfir sem og eru þeir efstir í deildinni. Þá skilst mér líka að þeir hafi meiri reynslu, getu og ætla að stjórna spennustiginu. Breytir þetta engu í mínum augum. Við ætlum að skemmta okkur á morgun, höfum engu að tapa því fyrir okkur er þessi leikur einungis bónus. Grótta auglýsir þennan leik sem stærsta leik í sögu félagsins, en við lítum á þetta sem skemmtun, sem við ætlum að vinna vitaskuld.
Er eitthvað í liði Gróttu sem við ættum að óttast? Já, þeir eru betri en við, reyndari og stjórna spennustigum. Annars er það augljóst að við verðum að einbeita okkur að því sem við erum sjálfir að gera.
Verður þú í hóp eins og Basti? NEI. Þó hann sé talsvert eldri en ég þá er hann svo unglegur að hann á líklega hátt í 10 ár eftir, að ég tel. Ég spila næsta tímabil í staðinn, ég lofa því.
Eitthvað að lokum? Hlakka til að sjá fullt hús á morgun. Við eigum frábæra stuðningsmenn og er ég þeim afar þakklátur fyrir þeirra framlag. Félag er ekkert annað en mannauðurinn sem fylgir og er í hverju félagi og við eigum nóg af honum sýnist mér. ÁFRAM SELFOSS ALLA LEIÐ!
| HK | - | FH | 35 | : | 32 |
| Haukar | - | Fram | 31 | : | 24 |
| HK | - | Selfoss | 30 | : | 31 |
| Haukar | - | Valur | 23 | : | 17 |
| Selfoss | - | FH | 26 | : | 25 |
| Fram | - | Valur | 25 | : | 29 |
| 1.-2. sæti: | |||||
| Selfoss | - | Haukar | 34 | : | 32 |
| 3.-4. sæti: | : | ||||
| HK | - | Fram | 38 | : | 34 |
| 5.-6. sæti: | |||||
| FH | - | Valur | 24 | : | 23 |
Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
