Leikurinn byrjaði vel hjá okkar mönnum sem komust í 4 - 1 en eftir það jafnaðist leikurinn og Grótta komst yfir 6 - 7 rétt um miðjan fyrri hálfleik. Aftur tóku okkar menn leikinn í sínar hendur og í þetta skiptið komumst þeir í 13 - 10. Þá kom röð brottvísana sem varð til þess að Selfyssingar voru 2 leikmönnum færri í dágóða stund. Við það jafnaðist leikurinn aftur og hálfleikstölur 15 - 15.
Grótta byrjaði síðari hálfleikinn mun betur og komst fljótlega í 2 marka forystu sem Selfyssingar náðu að vinna til baka og komast aftur yfir. Selfoss liðið var því meira og minna í bílstjórasætinu í leiknum öllum fyrir utan þennan stutta kafla í upphafi seinni hálfleiks. Eftir að jafnt hafði verið í einhvern tíma þá juku okkar menn forskotið úr 23 - 23 í 26 - 24 okkar með boltann tæpar 3 mínútur til leiksloka en þó einum færri. Hér á þessum tímapunkti í leiknum þurftu okkar menn bara 1 mark til viðbótar til að klára leikinn en á ögurstundu frusu menn og gerðu hver mistökin á fætur öðrum og Grótta jafnaði metin 26 - 26 og 1 mínúta til leiksloka. Eftir að hafa sótt í 30 sekúndur tóku heimamenn leikhlé og að því loknu var sótt af krafti. Varnarmaður Gróttu braut þá á Atla og var rekinn útaf og aðeins 16 sekúndur eftir. Selfoss stillir þá upp í kerfi og í þann mund sem Ragnar er í loftinu að skjóta 2 sekúndum fyrir leikslok þá er dæmd leiktöf og leiknum lauk án þess að okkar menn kæmu skoti á markið einum fleiri. Niðurstaðan því jafntefli 26 - 26.
Það verður að teljast skrýtin ákvörðun að dæma leiktöf um leið og skot er að eiga sér stað og aðeins 2 sekúndur eftir af leiktímanum. Einnig það að hendin komi upp eftir 1 mínútu sókn þar sem sótt er stanslaust á vörnina og búið að reka einn varnarmann útaf fyrir brot á manni sem er kominn í gegn. Sérstaklega í ljósi þess að næstum því hver einasta sókn Gróttu var á bilinu 1 og hálf til 2 og hálf mínúta. Kannski að það gildi aðrar reglur í lok leikja en síðuritari þekkir það ekki nógu vel og verðum við bara að treysta dómurum leiksins til þess að vita hvað er rétt. Það stendur þó upp úr að reynsluleysi liðsins kristallaðist í þessari sókn því að það er algjört lágmark að ná skoti á markið í svona stöðu.
Í framlenginguni byrjuðu okkar menn með boltann en skot Mikalonis fór í stöng og Grótta skoraði í næstu sókn og náði þar með frumkvæðinu aftur. Tvö Selfossmörk breyttu því og staðan orðin 29 - 27 fyrir Selfoss. Í næstu sókn skoraði Grótta og staðan orðin 28 - 29. Selfoss fékk síðustu sóknina og enn einu sinni klárast leikurinn án þess að heimamenn nái skottilraun á markið.
Seinni hálfleikur framlengingarinnar byrjaði vel fyrir Selfoss sem var en með frumkvæðið eins og mestan hluta leiksins. Í stöðunni 29 - 30 fyrir Selfoss eru dæmd skref á Selfoss en Sebastían var opið færi frá Gróttumönnum og enn einu sinni fá okkar menn tækifæri til þess að klára leikinn. Marki yfir rétt rúm mínúta eftir og með boltann. Ótrúlegur klaufaskapur varð þá til þess að Gróttumenn vinna boltann í vígang. Fyrst mistekst sending í hornið sem var í raun beint á Beláný og síðan mistekst línusending sem fer beint á varnarmann Gróttu. Þessi mistök kostuðu 2 hraðaupphlaupmörk í bakið á Selfossliðinu og staðan orðin 30 - 31 fyrir Gróttu. Selfoss fer í sókn og enn er Gróttumaður rekinn útaf. Einum fleiri missa svo Selfyssingar boltan vegna ruðnings og leikurinn búinn.
Það sem stendur uppúr er að okkar unga Selfosslið þorði ekki að klára leikinn þegar mest á reyndi. Því til staðfestingar er sú staðreynd augljós að engin af eftirfarandi sóknum endaði með skoti á markið. Síðasta sókn leiksins í venjulegum leiktíma, síðasta sókn liðsins í fyrri hálfleik framlengingar og síðustu 4 sóknir liðsins í lok framlengingarinnar. Það góða við þetta er að þetta er gríðarleg reynsla og lærdómur fyrir þessa stráka sem væntanlega munu læra af þessum mistökum og í frantíðinni klára unna leiki í einhverri af þeim fjömörgu tilraunum sem þeir fengu til þess í gær.
Grótta er því komin í Höllina í Bikarúrslit og geta þakkað það reynsluleysi okkar manna jafnt sem reynslu þeirra leikmanna sem skiptu sköpum á þessum mikilvægu augnablikum í leiknum. Leikmenn eins og Beláný sem var slakur í leiknum en skipti sköpum á réttum tíma og stóð uppi sem hetja Gróttumanna. Auk hans átti Finnur Ingi frábæran leik en hann skoraði 12 mörk og svo má ekki gleyma sterkri vörn Gróttumanna og Hlyni Morthens sem varði 22 skot þar af 1 víti.
Í Selfossliðinu áttu Atli og Michal góðan leik sem og Ragnar í fyrri hálfleik. Þá var Sebastian frábær í markinu en hann varði 27 skot þar af 1 víti. Varnarleikurinn var góður, sérstaklega innkoma Einars en liðið vantaði meira af hraðaupphlaupum í leik sinn. Þá voru hornin ekki nýtt nógu vel.
Helsta tölfræði:
Atli 7 mörk, 5 stoðsendingar
Michal 7 mörk, 4 fengin víti, 1 varið skot og 9 brotin fríköst
Ragnar 5 mörk, 2 stoðsendingar og 5 brotin fríköst
Guðmundur 5 mörk, 1 stoðsending
Bjarki 3 mörk, 2 stoðsendingar
Mikalonis 3 mörk, 3 stoðsendingar, 3 varin skot og 8 brotin fríköst
Sebastian varði 27 skot þar af 1 víti (47%)
Þá er Bikarinn búinn í ár og deildin tekur við og næsti leikur er á miðvikudaginn kemur á útivelli við Gróttu. Við hvetjum sem flesta Selfyssinga að koma og styðja liðið þrátt fyrir óhentuga tímasetningu.
Í lokin þá vill síðuritari koma á framfæri þökkum frá þjálfara og leimönnum liðsins til stuðningsmanna.
"Við þökkum fyrir stórkostlegan stuðning og einstaka stemmningu í leiknum. Við treystum á ykkur í þeim deildarleikjum sem eftir eru og með ykkar stuðningi munum við komast í úrvalsdeildina að ári"
Áfram Selfoss
