Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

12.2.2009 | Handboltaakademía

Sendiherra handboltans á Nýja Sjálandi

Fyrir stuttu fór Orri Davíðsson alla leið til Nýja Sjálands, en lengra er víst ekki hægt að komast frá Íslandi. Orri verður þar sem skiptinemi í 11 mánuði. Við vonum að hann byrji að stunda handbolta að nýju er hann kemur aftur. Annars er ekki ósennilegt að hann muni kenna þeim í Hringadróttinssögulandinu hvernig á að spila hina göfugu íþrótt handbolta.

Síðuritari hafði samband við Arnar þjálfara 3. flokks og spurði hann aðeins út í Orra. “Ég hef þjálfað hann síðan 2004 og er hann afar vinnusamur leikmaður, líkamlega sterkur og góður félagi. Eins er hann gríðarlega sterkur varnarmaður og hefur ávallt lagt sig 100% fram í þeim efnum sem og öðrum. Hann hefur bætt sig mikið í akademíu okkar og er sorglegt að loksins er hann var farinn að ná góðum tökum á ýmsum skotafbrigðum og fintum þá fer hann frá okkur. Það er þó mín von og trú að hann byrji að æfa handbolta aftur er hann kemur heim. Ljóst er að stórt skarð er höggvið í leikmannahóp 3. flokks, en svona er þetta og leysum við það. Vonandi kemur Orra til með að ganga sem best þarna “undir” og á hann eftir að vera landi og sjálfum sér til sóma. Orri fær sem sagt hæstu meðmæli frá mér”. 

Arnar Gunnarsson þjálfari


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta