Í gærkvöld komu ÍR-ingar í heimsókn til Selfoss og öttu þar kappi við heimamenn. Leikirnir voru tveir og unnu okkar menn þá báða, með afar misjafnri spilamennsku þó. 91-liðið lék fyrri leikinn og vann 25-24 í afar lélegum leik þar sem varnarleikurinn var hörmung, þrátt fyrir að fá aðeins 24 mörk á sig. 92-drengirnir unnu 39-23 og var sigurinn aldrei í hættu né nokkur spurning í þeim leik.
91-liðið vann eins og áður sagði með einu marki eftir að hafa verið undir í hálfleik 11-12. Selfyssingar léku afar illa í leiknum og voru margir að leika hörmulegan leik. Menn eins og Árni Steinn, Matthías, Örn og Andri Halls léku allir langt undir eðlilegri getu og virtist stundum eins og menn væru tilneyddir að vera með í leiknum. Þá hefur Þór Davíðsson líklega aldrei leikið eins illa og í þessum leik. Var úti á túni í vörninni.
Á hinn bóginn kom Aðalsteinn með kraft inn í leik liðsins, Andri Már gerði marga frábæra hluti á miðjunni og svo átti Trausti Eiríksson afar góðan leik í horninu. Þetta er í þriðja sinn í vetur þar sem þetta lið vinnur leik naumt eftir að hafa leikið vægast sagt hörmulega. Ljóst er að menn verða að girða sig í brók því það kemur að því að þeir vinna ekki leiki með svona spilamennsku. Reyndar átti liðið skilið að tapa í gær en það sýndi þó karakter undir lok leiks. Árni Steinn reif sig aðeins upp á lokakaflanum og skoraði þá nokkur mörk og Helgi Hlynsson fór að verja í markinu. Það var svo Trausti sem skoraði sigurmarkið eftir laglegan undirbúning Árna Steins.
Tölfræði:
Mörk/skot, fleira
Trausti 6/8 og 4 brotin fríköst
Árni Steinn 6/11
Aðalsteinn 4/8, 3 stoðsendingar og 7 brotin fríköst
Örn 4/10 og 6 brotin fríköst
Andri Már 3/4, 2 fiskuð víti og 3 stoðsendingar
Matti 2/10 og 7 brotin fríköst
Þór 1/1, 2 fiskuð víti og 7 brotin fríköst
Sigurþór, 17 brotin fríköst og 3 fráköst
Andri Halls 0/3
Helgi varði 9 og fékk á sig 10
Sverrir varði 5 og fékk á sig 14
92-strákarnir unnu svo örugglega með 16 mörkum eftir að hafa leitt í leikhléi 18-11. Allir fengu að spila mikið og rúllað var mikið á mannskapnum og kom það ágætlega út. Gaman var að sjá Sigurð Má spila sinn fyrsta leik síðan í apríl á síðasta ári en hann er að koma til eftir krossbandsslit. Einar Sverrisson lék mjög vel í gær sem og Sigurður Már og þá átti Anton góðan leik. Allir leikmenn skiluðu talsverðu framlagi til liðsins eins og góð liðsheild á að vera. Þessir strákar hafa verið í mikilli sókn og bætt sig mikið. Aukaæfingar þær sem þeir fá í akademíunni skipta miklu og heyrðist í einhverjum segja í haust: "Ég kann ekki og get ekki tekið undirhandarskot" eða "ég kann ekki að bíða og horfa á markmanninn, og lenda síðan og fara í kollhnís". Nú er þetta að skila sér og sjá menn mikinn mun.
Tölfræði:
Mörk /skot, fleira
Toni 11/14 og 8 brotin fríköst
Siggi Már 10/13, 3 stoðsendingar og 10 brotin fríköst
Einar 8/11, 3 stoðsendingar og 10 brotin fríköst
Ingvi (línumaður) 4/6 og 8 brotin fríköst
Danni 2/4 og 8 brotin fríköst
Keli 1/4
Guðbjörn 1/5
Kammi 1/3
Karlsson 1/3 og 6 brotin fríköst
Jóhann Gylfi 2 brotin fríköst og 2 stoðsendingar
Elli varði 11 og fékk á sig 18
Siggi varði 5 og fékk á sig 5
| HK | - | FH | 35 | : | 32 |
| Haukar | - | Fram | 31 | : | 24 |
| HK | - | Selfoss | 30 | : | 31 |
| Haukar | - | Valur | 23 | : | 17 |
| Selfoss | - | FH | 26 | : | 25 |
| Fram | - | Valur | 25 | : | 29 |
| 1.-2. sæti: | |||||
| Selfoss | - | Haukar | 34 | : | 32 |
| 3.-4. sæti: | : | ||||
| HK | - | Fram | 38 | : | 34 |
| 5.-6. sæti: | |||||
| FH | - | Valur | 24 | : | 23 |
Markahæsti leikmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
Besti leikmaður mótsins.
Ólafur Bjarki Ragnarsson, HK
Besti markmaður:
Birkir Fannar Bragason, Selfossi
Besti varnarmaður:
Freyr Brynjarsson, Haukum
Besti sóknarmaður:
Bjarki Már Elísson, HK
