Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

16.2.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann UMFA á heimavelli

Það var augljóst á liðinu í fyrri hálfleik að margir leikmanna liðsins voru enn langt niðri og hálf miður sín eftir vonbrigði síðstu viku með mfl. Reyndar áttu sumir í erfiðleikum allan leikinn á meðan aðrir náðu að hrista af sér slenið og að yfirstíga þessa hindrun.

Þótt strákarnir næðu upp þokkalegri vörn og markvörslu þá var sóknarleikurinn frekar slappur. Mikið var um tapaða bolta og nýting manna var slök í skotunum. Reyndar átti markvörður UMFA frábæran leik í fyrri hálfleik og var langbesti leikmaður gestanna. Staðan í hálfleik var 13-12 fyrir Selfoss.

Eftir smá spjall í hálfleik þá var ákveðið að leggja áherslu á sömu hluti og í fyrri hálfleik, en bara reyna að framkvæma þá betur og það gekk algjörlega upp. Eftir aðeins 10 mín. var staðan orðin 5-1 og alls 18-13. Eftir það jókst munurinn jafnt og þétt og varð mestur 12 mörk. Í lokin leystist leikurinn talsvert upp í óðagot og bæði lið spiluðu mun hraðar en þau réðu við og gerðu þar af leiðiandi ótal mistök sem voru eflaust skemmtileg fyrir áhorfendur. Lokatölur 33-23 fyrir Selfoss.

Tölfræði:
Raggi  7 úr 14, 4 stoðs., 1 tapaður bolti, 2 boltum náð, 3 varin skot og 4 brotin fríköst
Sveinbjörn  5 úr 6, 3 tapaðir boltar, 2 fengin víti og 5 brotin fríköst
Gummi  5 úr 16, 1 stoðs., 4 stolnir boltar og 2 brotin fríköst
Eyþór  4 úr 7, 2 stoðs., 3 tapaðir boltar, 1 frákast, 1 fengið víti og 5 brotin fríköst
Atli  4 úr 4, 1 fengið víti og 7 brotin fríköst
Sæli  4 úr 6 og 1 tapaður bolti
Bjarki  1 úr 4
Halli  1 úr 4, 8 stoðs., 4 tapaðir boltar, 3 fráköst og 2 fengin víti 
Hemmi  1 úr 1 og 2 tapaðir boltar
Örn  1 úr 2 og 1 tapaður bolti
Kúldi 2 fráköst, 4 varðir boltar og 5 brotin fríköst
Birkir varði 26 skot (54%) og 2 tapaðir boltar
Ástgeir kom inná í 1 víti en varði ekki

Næsti leikur hjá 2. flokki er bikarleikur við Akureyri fyrir norðan í undanúrslitum Bikarkeppninnar. Leikurinn er á morgun kl. 17:30 í Síðuskóla.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta