17.2.2009 | Handbolti
Tveir sigurleikir hjá 4. flokki kvenna um helgina
4. flokkur kvenna spilaði 2 leiki um helgina. Fyrst á föstudeginum gegn ÍBV á heimavelli og síðan á sunnudeginum gegn FH í Kaplakrika.
Selfoss - ÍBV
Leikurinn á móti ÍBV byrjaði mjög vel og komust okkar stelpur í 4-1. Þá slökuðu þær á og staðan í hálfleik því 8-6. Í seinni hálfleik spiluðu stelpurnar alveg skelfilega og náði ÍBV að jafna leikinn. En með smá vilja þá komust Selfoss stelpurnar framúr og kláruðu leikinn 13-11. Hrafnhildur Hanna var frábær í leiknum og skoraði 6 mörk. Einnig áttu Díana Sigmarsdóttir, Esther Hallsdóttir og Alexandra Sumarliðadóttir góða spretti inná milli. Aðrar eiga mikið inni.
Hrafnhildur Hanna 6 mörk úr 12 skotum, 4 stoðsendingar, 13 fríköst, 2 unnir boltar og 2 fiskuð víti.
Alexandra Sumarliða 2 mörk úr 3 skotum og 1 unnin bolti.
Díana Sigmarsdóttir 2 mörk úr 4 skotum, 3 fríköst og 2 unnir boltar.
Esther Hallsdóttir 1 mark úr 2 skotum, 12 fríköst, 1 unnin bolti, 1 hávörn og 1 fiskað víti.
Thelma Einarsdóttir 1 mark úr 1 skoti, 8 fríköst, 1 unnin bolti, 1 hávörn og 1 fiskað víti.
Kristrún Steinþórsdóttir 1 mark úr 7 skotum, 14 fríköst, 1 unnin bolti, 1 hávörn og 2 fiskuð víti.
Birta varði 7 skot og var með 38% markvörslu.
Selfoss - FH
Seinni leikurinn var síðan gegn FH og var hann algjör andstæða við leikinn gegn ÍBV. Fyrri hálfleikurinn fór illa af stað og lentu stelpurnar undir 3-1 en komu þó til baka og jöfnuðu leikin. Liðin skiptust síðan á að skora út hálfleikinn.
Selfoss-stelpurnar komu mun stefndari inn í seinni hálfleikinn og sýndu margar hverjar sýnar bestu hliðar. Vörninn var frábær og sóknarleikurinn markviss. Stelpurnar uppskáru mikilvægan sigur 17-12.
Allar stelpurnar skiluðu sýnu hlutverki mjög vel. Kristrún Steinþórsdóttir var frábær og spilaði einn sinn besta leik á tímabilinu bæði í vörn og sókn. Hrafnhildur Hanna spilaði einnig mjög vel. Esther Hallsdóttir var sterk fyrir í vörninni þrátt fyrir að spila veik. Einnig voru Thelma Björk og Jenný Jóhannsdóttir mjög sterkar í vörninni. Birta varði 7 skot í seinni hálfleik og stóð sig vel.
Kristrún Steinþórsdóttir 7 mörk úr 8 skotum, 1 stoðsending, 14 fríköst, 1 hávörn og 1 fiskað víti.
Hrafnhildur Hanna 6 mörk úr 8 skotum, 4 stoðsendingar, 5 fríköst, 1 unnin bolti og 3 hávarnir.
Díana Sigmarsdóttir. 2 mörk úr 6 skotum og 3 fríköst.
Alexandra Sumarliðadóttir 1 mark úr 1 skoti, 1 unnin bolti og 1 frákast.
Thelma Björk Einarsdóttir 12 brotin fríköst og 1 frákast.
Esther Hallsdóttir 6 brotin fríköst og 1 frákast.
Eftir helgina sitja stelpurnar á toppi deildarinnar með eins stigs forskot á FRAM. Næsti leikur er eftir viku gegn ÍR.