Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

21.2.2009 | Handbolti

Sigur gegn Ţrótti á heimavelli

Í liðið að þessu sinni vantaði alls 9 leikmenn og þar af 6 fastamenn. Birkir meiddist í bikarleiknum með 2 flokki á þriðjudaginn eins og Bjarki Már en meiðsli ágerðust í þeim leik. Þá voru Hörður Bjarnarson, Óskar Kúld, Einar Héðins, Mikalonis og Hermann Guðmundsson ekki heldur með. Guðni og Baldur eru enn sem fyrr meiddir og er tímabili þeirra lokið að þessu sinni.

Það var þó gaman að sjá Sjóla spila aftur eftir 4 vikur í gifsi. Hann var frekar óheppninn með skot sín en alls 3 skota hans af 8 fóru í tréverkið. Þá var virkilega gaman að sjá Sævar Þór Gíslason í handbolta og augljóst að hann er fyllilega gjaldgengur í góðu handbltaliði. Óljóst er þó hversu lengi hann getur hjálpað til í fjarveru allra hornamannanna þar sem fótboltinn er að byrja. Loks var gaman að sjá Ómar Vignir Helgason aftur eftir 5 ára pásu en hann kom á síðustu stundu í hóp vegna forfalla Hermanns Guðmundssonar sem festist í baki á leikdag. Gaman væri ef Ómar kæmist í betra form og gæfi kost á sér fyrir næsta ár enda leitun að jafn góðum varnarmönnum í handboltanum í dag.

Það var strax ljóst eftir 15 mín. í hvað stefndi en þá var staðan orðin 12 - 4. Í hálfleik var staðan orðin 25 - 11. Þegar 15 mín.voru eftir var staðan orðin 37 - 15. Það sem eftir var leiks dró aðeins úr ákafa heimamanna og spurning bara hvort 50 mörkunum yrði náð og hversu mikið Guðmundur Árni myndi skora í leiknum. Síðustu 15 mín. fóru 12 - 10 fyrir heimamenn og lokastaðan í leiknum því 49 - 25.

Hópnum var skipt í tvennt og spiluðu næstum allir 30 mín. Guðmundur Árni fékk þó að spila allan leikinn þar sem það stefndi í eitthvað sérstakt hjá honum snemma leiks. Guðmundur skoraði hvorki né færri en 19 mörk í leiknum í öllum regnbogans litum. Frábær leikur hjá þessum unga leikmanni.

Tölfræði:
Guðmundur Árni  19 mörk úr 23 skotum, 3 stoðs., 5 fráköst og 3 brotin fríköst
Sævar Þór  6  mörk úr 7 skotum, 1 stoðs. og 1 bolta stolið
Ársæll  4 mörk úr 6 skotum, 1 frákast og 4 brotin fríköst
Michal  3 mörk úr 5 skotum, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 2 fengin víti, 1 varið skot og 4 brotin fríköst
Eyþór  3 mörk úr 5 skotum, 5 stoðs., 1 fengið víti, 1 varið skot og 4 brotin fríköst
Sveinbjörn  3 mörk úr 3 skotum, 2 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 1 frákast og 1 brotið fríkast
Ragnar  3 mörk úr 7 skotum, 2 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 frákast, 1 varið skot og 10 brotin fríköst
Atli Kristins  2 mörk úr 4 skotum, 6 stoðs., 1 tapaður bolti, 3 stolnir boltar, 3 fráköst, 1 fengið víti og 4 brotin fríköst
Hörður  2 mörk úr 8 skotum, 1 stoðs., 2 tapaðir boltar, 2 boltum náð, 1 frákast, 1 fengið víti, 1 varið skot og 7 brotin fríköst
Ómar Vignir  2 mörk úr 2 skotum, 1 bolta náð, 1 frákast, 2 varin skot og 2 brotin fríköst
Helgi  1 mark úr 2 skotum, 13 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 frákast, 1 fengið víti og 9 brotin fríköst
Atli Hjörvar  1 mark úr 1 skoti, 1 frákast, 2 varin skot og 7 brotin fríköst
Ástgeir varði 21 skot (58%) og 1 stoðs.
Helgi varði 3 skot (23%)

Næsti leikri er á móti ÍR á heimavelli þar næsta föstudag og þá þurfum við Selfyssingar góðir (og aðrir) að fylla Vallaskóla aftur og skemmta okkur með strákunum okkar.
Áfram Selfoss


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta