Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

23.2.2009 | Handboltaakademía

Jafntefli hjá 91-liđinu gegn Fram

Í gær sótti 91-liðið Framara heim í Safamýri. Selfyssingar voru talsvert betri í leiknum en dugði sú frammistaða þó aðeins fyrir einu stigi. Er 20 mínútur voru til leiksloka var staðan 26-17 fyrir Selfoss en leikurinn endaði 38-38. Í hálfleik stóð 21-13 fyrir Selfoss. Síðuritari innti Arnar þjálfara eftir útskýringum á því hvað gerðist: "Síðustu 20 mínútur leiksins var settur upp ákveðinn leikþáttur sem ekki þjónar tilgangi að tala um". Ekki hress er heimasíðan heyrði í honum.

Það vakti athygli síðuritara að tölfræði Selfoss í leiknum er afar góð á flestan hátt nema markvarslan. 57 brotin fríköst, samt 38 mörk á sig, lélegasta skotnýtingin var 5/9 og liðið missti aðeins 14 skot í leiknum. En tapar hins vegar 16 boltum. Síðuritari bað Arnar um að útskýra hvað hann ætti við en hann fékkst ekki til þess. Hann sagði reyndar þetta vera það allra lélegasta sem markmennirnir hefðu sýnt nokkurn tímann og hann tryði því að þeir myndu taka sig fyrir næsta leik sem er á miðvikudaginn gegn Val á útivelli.

Tölfræði: Mörk/skot - fleira
Andri Már 10/13
Árni Steinn 6/8, 7 stoðsendingar og 9 brotin fríköst og 3 tapaðir
Matti 5/5, 4 stoðsendingar, 2 fráköst, 2 varin og 20 brotin fríköst
Örn 5/9, 9 stoðsendingar, 5 tapaðir og 6 brotin fríköst
Þór 4/5, 2 fráköst og 10 brotin fríköst
Steini 2/3, 4 brotin fríköst, 2 stoðsendingar og 2 tapaðir
Sissi, 2 brotin fríköst og 1 frákast
Toni 1 stoðsending, 1 tapaður og 1 frákast
Trausti 6/9, 3 tapaðir og 5 brotin fríköst
Helgi 6 skot (18%)
Sverrir 6 skot (38%)


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta