2. flokkur vann leikinn 36 - 26 en staðan í hálfleik var 17 - 14 fyrir Selfoss. Eftir þokkalegan fyrri hálfleik þá settu Selfyssingar í 5 gír og skelltu jafnframt í lás í vörninni. Valur náði aðeins að skora 4 mörk á fyrstu 20 mín. seinni hálfleiks, en þá var staðan orðin 29 - 18. Eftir það jafnaðist leikurinn.
Allt liðið spilaði vel að þessu sinni þrátt fyrir talsverðar af fjarvistir. Bjarki, Hermann og Baldur eru meiddir. Atli Hjörvar tók út leikbann og þá var Kúldi veikur. Eyþór og Sveinbjörn spiluðu þrátt fyrir að vera búnir að vera með ælupest alla helgina og þá var Birkir á bekknum, en bara til taks, þar sem hann er enn að jafna sig eftir tognun aftan í læri síðan í bikarleiknum við Akureyri.
Það kom þó ekki að sök að þessu sinni því að restin þjappaði sér saman og kláraði erfitt verkefni. Ástgeir átti stóreik og kvittaði þar með fyrir afleita frammistöðu í bikarnum. Sjóli kom sterkur inn eftir meiðslin og setti 7 bombur í markið þrátt fyrir að spila aðeins 25 mín. Þá átti Raggi stórleik í vörn, en hann var með alls 19 brotin fríköst og lokaði alveg á hættulegustu skyttu Valsmanna.
Tölfræði:
Sjóli 7úr 9, 1 stoðs., 1 bolta náð, 2 varin skot og 5 brotin fríköst
Gummi 6 úr 11, 1 stoðs., 1 stolinn bolti, 1 frákast, 1 fengið víti og 3 brotin fríköst
Einar 6 úr 6, 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 4 varin skot og 7 brotin fríköst
Eyþór 5 úr 8, 2 stoðs., 3 tapaðir boltar, 1 frákast, 1 varið skot og 10 brotin fríköst
Raggi 4 úr 8, 3 stoðs., 1 frákast. 2 varin skot og 19 brotin fríköst
Helgi 3 úr 5, 5 stoðs., 2 boltum náð, 1 fengið víti og 7 brotin fríköst
Halli 2 úr 2, 4 stoðs., 2 tapaðir boltar, 3 boltum náð, 1 fengið víti og 2 brotin fríköst
Sæli 2 úr 6, 1 stoðs., 3 fráköst og 2 brotin fríköst
Sveinbjörn 1 úr 2 og 3 brotin fríköst
Ástgeir varði 26 skot (50%) og 1 tapaður bolti
Birkir kom inná í 1 víti og varði það
Næsti leikur hjá 2. flokki er á föstudaginn kl. 19:00 í Vallaskóla á móti Haukum.
