Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

26.2.2009 | Handboltaakademía

Góđur sigur á Val í gćrkvöld

91-lið okkar Selfyssinga sótti Valsmenn heim að Hlíðarenda í gærkvöld en þar eru heimamenn ávallt erfiðir viðureignar. Heimamenn byrjuðu mun betur í leiknum og komust fljótlega í 5-1 og virtust okkar drengir ekki ætla að byrja þenna leik. Í stöðunni 7-5 fyrir Valsmenn breyttu okkar menn stöðunni í 7-9 sér í hag, en Valsmenn svöruðu með þremur mörkum og komust yfir á ný. Okkar drengir svöruðu með þremur mörkum til baka og leiddu svo í hálfleik 12-14. 

Fljótlega komust okkar piltar í sex marka forystu í síðari hálfleik. Þeirri forystu héldu þeir út leikinn eftir að hafa komist mest yfir níu mörk, 29-20. Lokatölur urðu 30-24. Að undanskildum fyrstu 15 mínútum leiksins lék Selfoss afar góða og sterka vörn með frábæra markvörslu Helga Hlynssonar fyrir aftan. Árni Steinn átti sinn besta leik varnarlega séð sennilega. Hann heldur kannski að hann sé orðinn einhver varnarjaxl. Ef svo er þá er það gott mál. Matthías átti einnig góðan leik, sem og Andri Már. Örn lék á línu í þessum leik og stóð sig vel, en meiddist í síðari hálfleik. Sigurþór (Zodiac) kom með mikinn kraft að venju inn í leik liðsins og Aðalsteinn átti sinn besta leik á tímabilinu til þessa.

Í lið Selfoss vantaði Þór Davíðsson, sem er farinn út sem skiptinemi, Andra Hrafn Hallsson er meiddur eins og Sigurð Má. Og munar um minna.

Ekki náðist í Arnar þjálfara þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir síðuritara.

Tölfræði: Mörk/skot - fleira
Matti 9/13, 3 stoðsendingar og 15 brotin fríköst
Árni varnartröll 6/9, 3 stoðsendingar, 2 stolnir og 20 brotin fríköst
Andri Már 5/9 og 4 brotin fríköst
Steini 4/5, 4 stoðsendingar og 2 stolnir
Örn 2/3
Sissi 2/3 og 5 brotin fríköst
Toni 1/3
Trausti 1/5 og 5 brotin fríköst
Helgi varði 20 og fékk á sig 12
Sverrir varði 1 skot en fékk á sig 12


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta