Selfoss byrjaði betur og komst 4 mörkum yfir í fyrri hálfleik. Haukar jöfnuðu en aftur komust okkar menn 4 mörkum yfir. Enn jöfnuðu Haukar og staðan í hálfleik 17 - 17. Selfoss byrjaði seinni hálfleikinn betur og aftur komust okkar menn 4 mörkum yfir. Enn jafna Haukar og enn stigu okkar menn á bensíngjöfina og komust aftur 4 mörkum yfir. Enn og aftur ná Haukar að jafna og í þetta skiptið komust þeir yfir og unnu leikinn með því að skora síðustu 4 mörk leiksins. Á þessum lokakafla brenndu okkar menn af víti og 2 öðrum dauðafærum til að klára leikinn.
Það var augljóst að Selfoss liðið spilaði betur í þessum leik en virtist samt aldrei hafa það sem þurfti til að klára leikinn. Leikmenn leyfðu sér að slaka á í hvert skipti sem forysta náðist. Þeim var svo refsað fyrir kæruleysið á lokamínútum leiksins.
Þá eru okkar menn búnir að missa frá sér 4 dýrmæt stig í baráttunni. Núna á móti Haukum og í desember á móti toppliði Akureyrar þar sem Selfoss var yfir allan leikinn nema á lokaandartökum leiksins og Akureyri stal sigrinum með því að komast bara einu sinni yfir í leiknum. Nóg er hins vegar eftir af deildinni og vonandi kemur þetta ekki að sök þegar upp er staðið.
Tölfræði:
Gummi 10 úr 14, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 2 fráköst og 1 brotið fríkast
Einar 7 úr 10, 1 tapaður bolti, 5 fráköst, 2 fengin víti, 2 varin skot og 9 brotin fríköst
Raggi 7 úr 13, 8 stoðs., 2 tapaðir boltar, 2 fráköst, 1 fengið víti, 2 varin skot og 22 brotin fríköst
Eyþór 2 úr 5, 1 stoðs., 3 tapaðir boltar, 1 bolta náð, 1 frákast, 1 fengið víti, 1 varið skot og 4 brotin fríköst
Bjarki 1 úr 1 og 1 tapaður bolti
Helgi 1 úr 1, 6 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 frákast og 6 brotin fríköst
Atli 1 úr 1, 1 fengið víti og 3 brotin fríköst
Sæli 1 úr 5, 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 1 frákast og 2 brotin fríköst
Halli 0 úr 2, 8 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 1 frákast og 3 brotin fríköst
Sjóli 0 úr 2
Ástgeir varði 19 skot (37%)
