Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

4.3.2009 | Handbolti

4. flokkur kvenna sigrađi HK 20:15

Stelpurnar í 4. flokki gerðu sér ferð í Digranes um helgina og sótti þangað 2 stig. Fyrri hálfleikur var mjög jafn og spiluðu stelpurnar nýja vörn eða svo kallaða 3-3 vörn og gekk hún mjög vel. Mikið af fríköstum fengust og HK-stelpurnar komust ekki langt. Í fyrrihálfleik skiptust liðin á að skora þótt að Selfoss hefði alltaf verið skrefinu á undan. Okkar stelpur tóku síðan góða rispu í lok hálfleiksins og skildu fjögur mörk liðin að í leikhléi, 12-8. Í seinni hálfleik var svipað upp á teningnum og gáfu okkar stelpur aldrei færi á sér. Leikurinn endaði síðan 20-15.  
Hrafnhildur Hanna átti enn einn stórleikinn í vörn og sókn. Í vörninni voru Kristrún, Esther, Alexandra og Jenný virkilega sterkar. Sóknin gekk mjög vel í leiknum og sterkastar þar voru Kristrún, Díana og Bína.
 
Hrafnhildur Hanna Þrastard. 8 mörk úr 14 skotum, 7 unnir boltar, 15 brotin fríköst og 6 stoðsendingar.
Díana Sigmarsd. 6 mörk úr 10 skotum og 10 brotin fríköst.
Kristrún Steinþórsd. 3 mörk úr 7 skotum, 4 unnir boltar og 10 brotin fríköst.
Bína Ingólfsd. 2 mörk úr 5 skotum og 2 brotin fríköst.
Esther Hallsd. 1 mark úr 3 skotum, 2 unnir boltar, 12 brotin fríköst og 1 stoðsending.
Alexandra Sumarliðad. 1 Unnin bolti, 8 brotin fríköst og 1 stoðsending.
Jenný Jóhannsdóttir. 7 brotin fríköst.
Ólöf Jóna Ævarsd. 2 Unnir boltar og 2 brotin fríköst.
Sigfríður Ingvarsd. 1 Unnin bolti.
María Skúlad. 2 brotin fríköst
Stella Hafsteinsd. 2 Unnir boltar og 3 brotin fríköst
 
Birta Antonsd. 13 skot varin þar af 1 víti
 
Liðið braut 71 fríkast í þessum leik.

Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta