Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

5.3.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Val á útivelli

Vörn og þar markvarsla var frekar slök í fyrri hálfleik og skipti þá engu þótt reynt væri að breyta um varnaraðferð. Þá voru sóknirnar frekar stuttar en Selfoss eyddi alls 12 sek. í fyrstu 4 upphlaupin sín á fyrstu 5 mín. leiksins og þá var staðan líka orðin 1 - 4 fyrir Val. Þegar okkar menn fóru að eyða smá tíma í sóknarleikinn þá lagaðist ástandið aðeins en okkar menn voru alltaf skrefi á eftir Völsurum. Selfoss var undir hálfleik 15 - 13 og hefði munurinn vel getað verið meiri.

Seinni hálfleikurinn var allur annar. Selfoss liðið náði sér á strik í vörninni og þá var ekki að því að spyrja að markvarslan fylgdi með. Birkir sem hafði aðeins varið 6 skot í fyrri hálfleik varði alls 14 skot í seinni hálfleik og mörg þeirra úr algjörum dauðafærum. Þetta gaf liðinu færi á ódýrum mörkum úr hraðaupphlaupum sem leiddi því næst til meira sjálfstrausts í sókn. Að lokum var munurinn kominn í 10 mörk en Valur skoraði síðustu mörk leiksins og niðurstaðan 8 marka sigur 24 - 32.

Halli átti stórleik á miðjunni og þá voru Gummi, Raggi, Bjarki og Einar sterkir líka. Þá má alls ekki gleyma því að Birkir átti ótrúlegan seinni hálfleik, en það kveikti víst í honum að Basti sagðist ætla að byrja í næsta mfl. leik ef hann myndi ekki sýna honum það í seinni hálfleik að hann ætti það skilið að byrja. Hvort sem það var það eða eitthvað annað, þá gerðist a.m.k. eitthvað sem gjörbreytti frammistöðunni.

Tölfræði:
Gummi  8 úr 11 og 1 fengið víti
Halli  6 úr 9, 11 stoðs., 2 tapaðir boltar, 3 fráköst, 1 fengið víti og 4 brotin fríköst
Bjarki  6 úr 10 og 2 stoðs.
Raggi  5 úr 9, 5 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 2 fráköst, 1 varið skot og 16 brotin fríköst
Einar  3 úr 3, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 2 fengin víti, 4 varin skot og 2 brotin fríköst
Helgi  2 úr 4, 6 stoðs., 2 tapaðir boltar, 1 varið skot og 6 brotin fríköst
Eyþór  1 úr 4, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 frákast og 4 brotin fríköst
Sjóli  1 úr 6, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 2 boltum náð og 2 brotin fríköst
Atli  1 fengið víti og 1 brotið fríkast
Kúldi  3 brotin fríköst (spilaði bara vörn)
Sæli  1 brotið fríkast

Birkir  20 skot varin þar af 1 víti (46%), 2 stoðs. og 2 tapaðir boltar
Ástgeir kom ekkert við sögu að þessu sinni
Sveinbjörn, Hermann og Baldur eru meiddir.

Næsti leikur hjá 2. flokki er útileikur gegn Fram á sunnudaginn.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta