Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

9.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur á ÍR í deildinni

Selfoss byrjaði leikinn mun betur og komst fljótlega í 4 - 0. Munurinn jókst og varð mestur 12 - 6 þegar 20 mín. voru búnar af leiknum. ÍR liðið tók þá við sér og lagaði stöðuna fyrir hlé með góðum kafla. Staðan í hálfleik var 16 - 13 fyrir okkar menn,

Síðari hálfleikurinn byrjaði í jafnvægi en svo tók Selfoss kipp og þegar 15 mín. voru til leiksloka var staðan orðin 24 - 18 og ekki margt sem benti til þess að ÍR kæmist aftur inn í leikinn. ÍR liðið gefst hins vegar aldrei upp og löguðu þeir stöðuna aftur fyrir leikslok. Lokatölur voru eins og áður segir 29 - 26.

Bæði lið hafa spilað betur en þau gerðu í þessum leik en það var samt einhvern veginn alltaf þannig í þessum leik að sigur okkar manna var aldrei í neinni hættu. Það verður að teljast gott að vinna toppslag í deildinni án þess að spila sinn besta leik. Það eru augljós þroskamerki á liðinu frá því í haust. Liðið virkar alltaf meira og meira yfirvegaðra og þar með þéttara en áður. Ungu strákarnir hafa farið mikla rússíbanareið í vetur og margir þeirra þurft að fullorðnast frekar hratt í vetur. Þeir hafa verið að innbyrða nokkurra ára reynslu á aðeins örfáum mánuðum og það mun klárlega reynast dýrmætt þegar þeir standa á næsta þröskuldi.

 

Tölfræði:
Bjarki Már  11 mörk úr 12 skotum, 1 stoðs., 1 fengið víti, 1 varið skot og 2 brotin fríköst

Ragnar  5 mörk úr 12 skotum, 6 stoðs., 5 tapaðir boltar, 2 boltum náð, 2 fráköst, 1 varið skot og 15 brotin fríköst  

Atli  4 mörk úr 7 skotum, 6 stoðs., 1 tapaður bolti, 3 boltum náð, 1 frákast, 2 fengin víti, 1 varið skot og 5 brotin fríköst

Helgi  2 mörk úr 2 skotum, 7 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 2 fráköst og 1 fengið víti

Gummi  2 örk úr 7 skotum, 1 tapaður bolti og 2 brotin fríköst

Michal  2 mörk úr 4 skotum, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 fengið víti, 1 varið skot og 8 brotin fríköst

Hörður Bjarnar  2 mörk úr 4 skotum, 1 stoðs., 2 fráköst og 1 fengið víti

Mikalonis  1 mark úr 1 skoti, 1 bolta náð, 1 frákast, 1 varið skot og 9 brotin fríköst

Einar  0 mörk úr 1 skoti, 1 frákast og 1 brotið fríkast

Eyþór  1 stoðs.

Birkir varði 21 skot (45%), 1 stoðs. og 3 boltum náð

Sjóli og Sævar Þór komu ekkert við sögu í leiknum. Þetta var síðasti leikurinn sem Sævar Þór hjálpar okkur í og þökkum við honum fyrir að vera til staðar í öllum þeim forföllum sem hafa verið að plaga liðið. Við óskum honum góðs gengis í fótboltanum í sumar.

Áfram Selfoss

 


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta