Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

9.3.2009 | Handboltaakademía

2. flokkur vann Fram á útivelli

Leikurinn byrjaði rólega og eftir 15 mín. var staðan 4 - 4. Þá var eins og liðin vöknuðu af dvala eftir aðeins 5 mín. var staðan orðin 8 - 8. Þegar 5 mín. voru svo eftir af hálfleiknum tóku strákarnir kipp og breyttu stöðunni úr 10 - 11 í 11 - 16.

Seinni hálfleikinn byrjaði eins og sá fyrri endaði og eftir aðeins 5 mín. leik var kominn 8 marka munur, 12 - 20. Mestur varð munurinn þegar 10 mín. voru til leiksloka eða 20 - 30. Þá leystist leikurinn upp í óðagott og vitleysu þar sem hver mistökin á fætur öðru voru gerð. Leikurinn endaði síðan á því að Bjarki klikkaði á víti og niðurstaðan 8 marka sigur 27 - 35.

Liðið sem heild var að spila vel og langflestir að skila sínum hlutverkum með sóma. Raggi og Ástgeir stóðu örlítið uppúr heildinni að þessu sinni.

Tölfræði:
Raggi  11 úr 16, 8 stoðs., 2 tapaðir boltar, 3 boltum náð, 2 varin skot og 14 brotin fríköst
Einar  5 úr 6, 1 stoðs., 1 bolta náð, 1 frákast, 3 fengin víti, 5 varin skot og 10 brotin fríköst
Bjarki  5 úr 10, 1 bolta náð, 1 frákast, 1 fengið víti og 1 brotið fríkast
Atli  4 úr 6, 2 boltum náð, 1 frákast og 5 brotin fríköst
Eyþór  3 úr 7, 4 stoðs., 3 tapaðir boltar og 8 brotin fríköst
Sæli  2 úr 2 og 2 fengin víti
Halli  2 úr 3, 11 stoðs., 4 tapaðir boltar, 1 bolta náð, 1 frákast, 1 fengið víti, 1 varið skot og 3 brotin fríköst
Sveinbjörn  2 úr 6, 2 tapaðir boltar, 1 bolta náð, 1 frákast og 6 borin fríköst
Ástgeir 1 úr 1 (yfir allan völlinn)
Árni  0 úr 2, 1 tapaður bolti og 1 brotið fríkast
Kúldi  1 bolta náð, 2 fráköst og 3 brotin fríköst
Helgi  1 stoðs. og 1 tapaður bolti
Ástgeir varði 20 skot (50%)
Birkir varði 3 skot þar af 1 víti (30%)


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta