Stelpurnar byrjuðu ílla varnarlega en stóðu sig vel í sókninni, um miðjan seinni hálfleik fóru stelpurnar að spila betri vörn og þá kom markvarslan með og Selfoss náðu góðu forskoti, staðan í hálfleik var 14-9 Selfossi í hag. Seinni hálfleikurinn byrjaði af sama krafti og sá fyrri endaði og náðu stelpurnar að auka forskot sitt með góðri vörn og góðum sóknarleik. Seinustu 10 mínútur leiksins voru samt svipaðar og fyrstu 10 mín leiksins og misstu stelpurnar forskotið aðeins niður. Leikurinn endaði þó 28-22, góður sigur hjá stelpunum sem að sýndu oft á
tíðum frábær tilþrif í sóknarleiknum.
Allar stelpurnar spiluðu í leiknum og stóðu sig vel. Hildur, Íris og Dagný stóðu uppúr í sókn. Í vörninni voru Thelma og Dagný góðar og fyrir aftan vörnina varði Áslaug 20 skot.
Tölfræði:
Hildur 9 mörk, 3 stoðsendingar, 2 fiskuð víti
Íris 5 mörk, 1 fiskað víti
Dagný 4 mörk, 2 stoðsendingar
Gugga 3 mörk 1 fiskað víti
Thelma 3 mörk, 2 stoðsendingar
Jóhanna 2 mörk, 4 stoðsendingar
Sara 1 mark og 1 stoðsending
Ragga 1 mark
Ragna 1 fiskað víti
Áslaug 20 skot varin
