Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

12.3.2009 | Handboltaakademía

Leikir í 3. flokki

Í kvöld kl. 20.45 leikur 92-lið okkar á Selfossi gegn UMFA úr Mosfellsbæ. Gestir okkar hafa fínu liði á að skipa og eru þjálfaðir af Karli Erlingssyni, en hann er afar fær þjálfari og hefur gert marga góða hluti fyrir íslenskan handbolta. Fyrri leik liðanna lauk með öruggum sigri okkar manna að Varmá í Mosfellsbæ. Lið Selfoss hefur breyst talsvert síðan þá og er því spurning hvað verður í kvöld.

Sama Selfoss-lið leikur svo við Hörð frá Ísafirði á laugardagsmorgun kl. 10.00.

Síðar sama dag kemur yfirburðarlið Þórs frá Akureyri í heimsókn og etur þar kappi við 91-lið okkar. Leikurinn hefst kl. 18.30 og verður mikið um dýrðir. Þórsarar eru lang efstir í deildinni og hafa fimm stiga forskot á næsta lið sem er einmitt Selfoss og því afar ósennilegt að okkar menn nái að knýja fram sigur. Ekkert getur komið í veg fyrir sigur Þórs í deildinni og því ljóst að sigurlíkur Selfoss eru litlar.

Þórsarar fóru í bikarúrslit, en þurftu að játa sig þar sigraða. Þeir mæta eflaust tvíefldir til leiks á laugardaginn. Síðuritari er afar svartsýnn, en Arnar þjálfari kvaðst hins vegar afar bjartsýnn, eins og alltaf reyndar. Liðin hafa mæst tvisvar í vetur, fyrst í bikarnum þar sem Þór vann stórt í leik sem var afar vel og sanngjarnt dæmdur. Síðar svo í deildinni með fjórum mörkum, þar sem sigurinn gat lent hvoru megin sem var, en einhverra hluta vegna lenti hann Þórs megin!

Allir þessir þrír leikir fara fram í Vallaskóla.


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta