Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

13.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur á útivelli á móti Haukum U

Birkir, Guðmundur, Hermann og Óskar Kúld voru allir meiddir fyrir þennan leik og þar sem Ástgeir var líka tæpur þá spilaði Sebastian bara sjálfur að þessu sinni.

Leikurinn byrjaði á ofboðslegum hægagangi. Það var eins og að fara nokkra áratugi aftur í tímann að horfa á liðin spila í fyrri hálfleik. Selfoss náði mest 6 marka forystu í fyrri hálfleik en á aðeins 5 mín. kafla fengu okkar menn 3 brottvísanir á einu bretti og Haukar gengu á lagið og minnkuðu muninn og staðan í hálfleik var því 13 - 16.

Á þessum kafla frá 21 mín. til 26 mín. leystist allt upp í vitleysu þar sem bæði lið sem og dómararnir urðu æstir og talsverð orðasamskipti áttu sér stað inni á vellinum á alla kanta. Hvert sem litið var voru menn að rökræða af ákafa. Leikmenn við leikmenn, dómarar við leikmenn og leikmenn við dómara og loks leikmenn við varamannabekki og öfugt. Þeir fáu áhorfendur sem voru í húsinu lögðu síðan sitt af mörkunum. Allt saman frekar farsakennt og náði hámarki þegar Ragnar fékk beint rautt fyrir engar sakir. Frá því sjónarhorni úr stúkunni þar sem sá sem þetta skrifar sat var augljóst að spjaldið var fiskað. Því miður þá féllu dómararnir fyrir því og ekkert við því að gera. Því verður ekki breytt héðan af.

Það var augljóst að Sebastian náði að róa sína menn niður í hálfleiknum og fá þá til þess að einbeita sér að leiknum því að á fyrstu 10 mín. seinni hálfleiks þá gerði Selfoss útum leikinn með góðri vörn og vel útfærðum hraðaupphlaupum. Það sem eftir var leiks datt leikurinn aftur niður í rólegheit þar sem bæði lið virtust bara vera að bíða eftir því að leiknum lyki. Niðurstaðan 13 marka sigur 25 - 38.

Tölfræði:
Atli  9 mörk úr 10 skotum, 6 stoðs., 1 bolta náð, 2 varin skot og 2 brotin fríköst
Helgi  8 mörk úr 9 skotum, 9 stoðs. og 4 brotin fríköst
Michal  7 mörk úr 8 skotum, 2 stoðs., 1 bolta náð, 4 fengin víti og 6 brotin fríköst
Mikalonis  5 mörk úr 7 skotum, 4 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 3 fráköst, 3 varin skot og 8 brotin fríköst
Bjarki Már  4 mörk úr 6 skotum, 1 frákast og 1 fengið víti
Hörður Bjarnar  1 mark úr 2 skotum, 1 tapaður bolti, 1 fengið víti og 1 brotið fríkast
Ársæll  1 mark úr 1 skoti, 1 tapaður bolti, 2 boltum náð og 2 brotin fríköst
Eyþór  1 mark úr 1 skoti, 1 stoðs. og 1 brotið fríkast
Hörður Más  1 mark úr 6 skotum, 1 stoðs., 1 tapaður bolti, 1 bolta náð, 1 frákast og 3 brotin fríköst
Ragnar  1 mark úr 2 skotum og 3 brotin fríköst (þær 6 mín. sem hann fékk að vera með)
Einar  0 mörk úr 1 skoti, 2 stoðs., 1 bolta náð, 2 fráköst, 1 varið skot og 8 brotin fríköst
Halldór Stefán  0 mörk úr 1 skoti, 4 stoðs. og 1 brotið fríkast
Sebastian varði 21 skot þar af 2 víti (46%), 1 tapaður bolti og 3 stoðs.
Ástgeir kom ekki við sögu í leiknum

Næsti leikur er síðasti heimaleikur liðsins í deildarkeppninni og það er stórleikur á móti UMFA sem er með mjög gott lið og hefur verið á mikilli siglingu eftir áramót.  Nú er um að gera fyrir Selfyssinga að fjölmenna á leikinn og hita vel upp fyrir úrslitakeppnina.

Leikurinn verður föstudaginn 27. mars kl. 19:30


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta