Selfoss-91 vann Þór frá Akureyri í hörkuleik á Selfossi 33-31. Í hálfleik stóð 19-15 fyrir heimamenn eftir að þeir höfðu mest náð átta marka forystu 17-9. Síðustu átta mínútur hálfleiksins skoruðu Þórsarar 6-2 og munaði þar miklu um klaufaleg mistök Selfyssingar sem gáfu Þórsurum mörg auðveld mörk í kjölfarið. Þórslið var frekar geðstirt og hafði allt á hornum sér gagnvart öllum í húsinu og sér í lagi dómurum leiksins. Liðið var heppið að vera einungis fjórum mörkum undir í hálfleik. Margir dómar voru þó vissulega umdeildir, en eftir að síðuritari horfði á myndband af leiknum þá voru þeir dómar ekki svo margir.
Þórsarar hófu seinni hálfleik af krafti og náðu að minnka muninn í eitt mark. Á sama tíma virtist sem heimamönnum væri fyrirmunað að skora sama hve góð færi þeir fengu. Þórsarar virtust einnig hafa róað sig frá því í fyrri hálfleik þar sem skapið hljóp með þá í eitthvað allt annað en einbetingu fyrir handbolta. Þegar þeir einbeittu sér að handbolta fóru hlutirnir all verulega af stað fyrir þá, enda margir góðir leikmenn í lið norðanmanna. Selfyssingar komust þó aftur fjögur mörk yfir en Þórsarar svöruðu með fimm mörkum í röð og komust yfir í fyrsta sinn í leiknum, 25-26. Þá tóku heimamenn leikhlé og eftir það lagaðist leikur liðsins verulega. Næstu þrjú mörk voru þeirra og og komst liðið í 33-28. Þórsarar skoruðu þrjú síðustu mörk leiksins og lokatölur uðru því 33-31.
Þórsarar fengu tíu brottvísanir í leiknum þar af fimm vegna kjaftbrúks og að henda boltanum í burtu. Eitthvað sem síðuritara fannst vera óskynsamlegt að gera en tvær af hinum fimm þóttu þó vafasamar. Selfoss fékk fimm brottvísanir. Þór fékk þrjú víti en Selfoss aðeins eitt. Tvisvar var dæmd lína á Þór er mark var skorað en fjórum sinnum á Selfoss. Selfyssingar nýttu sér það að vera fleiri nær aldrei, sennilega vegna þess að þetta lið er vant því að vera einum færri meira og minna alla leiki. Til gamans má geta þess að í þremur síðustu leikjum þessa Selfossliðs á undan hefur andstæðingurinn fengið samtals 35 vítaköst en Selfoss tvö, andstæðingarnir fengið tvær tveggja mínútna brottvísanir en Selfoss 25.
Þetta verður að teljast góður sigur þar sem lykilmenn á borð við Matta, Örn og Andra Má náðu sér ekki almennilega á strik í leiknum. Mikið munaði aftur á móti um að fá Andra Halls inn í lið og ekki síst Sigurð Má. Liðið er að fá þá breidd sem það hefur vantað. Þá lék Árni Steinn vel og Sigurþór átti sinn besta sóknarleik á ferlinum.
Þórsarar eru með gott lið og hefðu líklega haft sigur ef skapið hefði ekki fengið þá til að einbeita sér að því sem best er að láta eiga sig. Það er mat síðuritara að minnsta kosti. Þór býr einnig að frábærum grunni sem þeir hlutu hjá Hafþóri Einarssyni á sínum tíma. Duglegir strákar sem gefast aldrei upp og eiga tvo stráka í landsliðshópi U-90 og sýndu þeir í gær að þar eiga þeir heima.
Tölfræði leiksins
Árni Steinn 8/12, 11 stoðsendingar og 4 brotin fríköst
Sigurþór 6/8, 9 brotin fríköst og 2 varin
Andri H 6/11
Matthías 4/8, 4 stoðsendingar og 14 brotin fríköst og 2 tapaðir
Sigurður Már 3/6, 2 varin og 3 brotin fríköst
Örn 3/6, 6 stoðsendingar og 3 brotin fríköst
Aðalsteinn 2/4, 2 fráköst og 3 brotin fríköst
Andri Már 1/3, 3 tapaðir
Trausti fékk ekkert færi en lék 30 mínútur og stóð sig vel
Helgi varði 24 skot en fékk á sig 31
Sverrir hefur verið meiddur í nokkurn tíma en mikilvægt er að hann nái sér að fullu áður en hann fer af stað aftur. nóg er eftir af tímabilinu.
