Harðarmenn frá Ísafirði heimsóttu Selfoss2 í gær og fór leikurinn fram strax á eftir leik eldra liðsins. Afar gaman er að sjá að menn leggi rækt við handboltann á Ísafirði og vonandi mun það starf ganga og blómstra. Selfyssingar virkuðu aftur á móti afar áhugalausir og léku arfaslaka vörn. Þeir nenntu ekki að spila hraðan leik sem hefur hingað til fært þeim auðveldari mörk en ella. Í leikhléi stóð 17-10 en leiknum lauk 33-16.
Ísfirðingar voru ekki með varamann í leiknum sökum meiðsla og háði það þeim nokkuð þar sem menn gátu ekki hvílt sig sem skyldi. Er einn leikmanna þeirra meiddist léku Selfyssingar með fimm útispilara inn á.
Anton lék vel í leiknum og Einar átti ágæta spretti. Erlingur varði vel á köflum og gaman var að sjá strákana úr 4. flokki, þá Árna Geir og Jóhann Gylfa standa sig vel enda hafa báðir verið í talsverðri framför í vetur. Þá lék Ingvi vel á línunni og hafa margir rætt um að hann sé efni í öflugan línumann.
Tölfræði
Anton 9/14, 6 stoðsendingar, 3 stolnir, 3 fráköst og 10 brotin fríköst
Einar 9/12, 6 stoðsendingar, 2 stolnir, 3 tapaðir, 3 varin og 5 brotin fríköst
Daníel 4/8, 3 stoðsendingar, 3 varin og 3 brotin fríköst
Ingvi 4/6 og 12 brotin fríköst
Guðbjörn 3/3, 3 brotin fríköst og 1 tapaður
Kamil 1/2, 2 fráköst og 3 brotin fríköst
Ísak 1/2 og 2 brotin fríköst
Jóhann Gylfi 1/3, 2 varin og 6 brotin fríköst
Árni Geir 1/1, 2 stolnir
Ketill fékk ekkert færi en átti eina stoðsendingu og fráköst
Biggi 0/1, 4 fráköst og 2 brotin fríköst
Erlingur varði 19 skot (2 víti) en tapaði einum bolta
Bæði Selfossliðin leika gegn FH næsta föstudag og verður um hörkuleiki að ræða. Margir vilja meina að vagga handboltans sé í Hafnarfirði og er alltaf gaman að leika þar gegn allri þeirri hefð og frægð er því félagi fylgir. Vel er haldið utan um handboltamálin hjá FH og hafa þeir uppskorið eftir því undafarin ár. Einnig um næstu helgi fer 92 liðið til Vestmannaeyja og leikur þar við ÍBV.
