Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

16.3.2009 | Handboltaakademía

Sigur gegn HK í 2. flokki

Fyrri hálfleikur gekk vel og eftir 25 mín. var staðan orðin 17-10. Þá tóku HK menn kipp og minnkuðu muninn í 20-15, sem voru hálfleikstölur. Seinni hálfleikur þróaðist nákvæmlega eins. Selfoss komst mest í 29-16 og svo komu HK menn aftur til baka og endaði seinni hálfleikurinn einnig 20-15. Lokatölur því 40-30.

Eins og áður sagði spilaði allt liðið vel að þessu sinni og skiptust menn á að draga vagninn eftir þörfum. Sóknarleikurinn var frábær sem og hraðaupphlaupin sem voru oft virkilega vel útfærð. Þá var varnarleikurinn á köflum mjög góður en 30 mörk á sig segja ekki alla söguna því að HK fékk talsvert fleiri sóknir í leiknum en Selfoss. Eins og vanalega þá eyddu Selfyssingar meiri tíma í vörn en sókn þar sem leikur liðsins er svo hraður en menn eru orðnir vanir því.

Í liðið vantaði bæði Gumma og Hemma vegna meiðsla þannig að hægra hornið er frá, en Sjóli og Atli hafa leyst þessa stöðu með prýði uppá síðkastið.

Næsti leikur er strax á morgun á móti toppliði Akureyrar sem eiga deildarmeistaratitilinn vísan. Leikurinn er í Síðuskóla á Akureyri sem er einn erfiðasti útivöllur landsins.

Tölfræði:
Raggi  11 úr 14, 5 stoðs., 1 tapaður bolti, 3 boltum náð, 1 frákast, 1 varið skot og 14 brotin fríköst
Einar  8 úr 10, 2 boltum náð, 1 frákast, 3 varin skot og 8 brotin fríköst
Eyþór  5 úr 8, 3 stoðs., 2 tapaðir boltar, 3 varin skot og 3 brotin fríköst
Sjóli  4 úr 8, 1 stoðs., 2 tapaðir boltar, 2 boltum náð og 3 brotin fríköst
Halli  3 úr 4, 10 stoðs., 4 tapaðir boltar, 1 bolta náð, 2 fráköst og 2 brotin fríköst
Bjarki  3 úr 5 og 1 bolta náð
Sveinbjörn  3 úr 4, 1 stoðs., 1 tapaður bolti og 5 brotin fríköst
Helgi  2 úr 5, 11 stoðs., 2 tapaðir boltar, 1 bolta náð og 3 brotin fríköst
Atli  1 úr 1, 1 tapaður bolti og 3 bortin fríköst
Sæli  0 úr 2
Ástgeir varði 7 skot í fyrri hálfleik (32%)
Birkir varði 7 skot í seinni hálfleik (32%)


Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta