Nýverið var undirritaður styrktarsamningur á milli handknattleiksdeildar Umf. Selfoss og Olís. Með samningnum er staðfestur stuðningur Olís við handboltastarfið á Selfossi. Á meðfylgjandi mynd handsala Ingvar Guðmundsson, Olís og Jón Ragnar Ólafsson frá handknattleiksdeildinni samninginn.
