Beint á leiđarkerfi vefsins

Handbolti

Handbolti - RSS

18.3.2009 | Handbolti

Sigurganga 4. flokks kvenna heldur áfram

Stelpurnar okkar í 4. flokki lögðu ÍR mjög sannfærandi síðastliðinn Sunnudag. Stelpurnar héldu áfram að spila mjög framliggjandi vörn með þær Hönnu, Kristrúnu og Estheri í fararbroddi. Við þeirri vörn höfðu ÍR stelpurnar fá sem engin svör og öll 5 mörkin sem þær skoruðu í fyrri hálfleik komu eftir víti eða hnoð þar sem að ÍR stelpurnar fengu frákast eða boltinn datt fyrir þær. Sóknarleikurinn hjá Selfoss var aftur á móti með ágætum og náðu stelpurnar að skapa sér ýmis færi úr flestum stöðum og var staðan í hálfleik 14-5 fyrir Selfoss.
 
Í seinni hálfleik breyttu Selfoss stelpurnar síðan um vörn og duttu niður í svokallaða 5-1 vörn sem virkaði með ágætum. Áfram gekk sóknin eins og í sögu og mörkin litu dagsins ljós í öllum regnbogans litum. Skytturnar áttu mjög góðan dag sem og allt liðið en allir sem spiluðu í leiknum stóðu sig mjög vel.
 
Bestar hjá Selfossi voru þær Díana (sem var sú fyrsta í liðinu til að ríða á vaðið og prófa þá ,,flóknu” hluti sem er verið að æfa á æfingum), Kristrún, Hanna og Esther.
 
Tölfræði
 
Hrafnhildur Hanna, 8 mörk úr 9 skotum, 5 stoðsendingar, 2 unna bolta og 12 fríköst.
Díana Sigmars, 6 mörk úr 7 skotum og 2 fríköst.
Kristrún Steinþórs, 6 mörk úr 10 skotum, 3 stoðsendingar, 1 hávörn og 18 fríköst.
Esther Halls, 3 mörk úr 3 skotum, 2 fiskuð víti og 5 fríköst.
Guðrún Bína, 1 mark úr 2 skotum og 1 fríkast.
Alexandra, 1 mark úr 1 skotu og 1 fríkast.
 
Birta Rós var með 7 skot varinn þar á meðal 1 víti.
 
Næsti leikur liðsins er úrslitaleikur deildarinnar gegn FRAM á Selfossi.

Á nćstunni


Nýjustu úrslit

landsbankinn.iswww.einstokborn.islyfogheilsa.iswww.olis.ishusasmidjan.isset.isss.isvis.isms.ishttp://www.gtyrfingsson.is

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta